Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 8. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:24 0 0°C
Laxárdalsh. 22:24 0 0°C
Vatnsskarð 22:24 0 0°C
Þverárfjall 22:24 0 0°C
Kjalarnes 22:24 0 0°C
Hafnarfjall 22:24 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Pistlar | 23. maí 2018 - kl. 22:40
Góðir leiðtogar
Eftir Erlu Jakobsdóttur

Nú í aðdraganda kosninga veltir maður fyrir sér ýmsum málum eins og gengur og gerist. Í sveitarfélaginu mínu eru tveir listar sem bjóða fram og margt frambærilegt fólk á báðum listum. Ég efast ekki um að fólkið á þessum listum vilji það sama fyrir sveitarfélagið sitt, að gera það betra svo það megi vaxa og dafna. Í lok kosninga er mikilvægt að flokkarnir geti unnið saman og sýnt góða samstöðu þegar það á við og unnið saman að góðum verkefnum.

Það sem ég met hvað mest í fari fólks er góð nærvera, hlýleg framkoma og heiðarleiki. Ég vil sjá heiðarlegt fólk í sveitastjórn, fólk sem er tilbúið að vinna saman að verkefnum. Ég vil sjá fólk koma með hugmyndir og leiðir hvernig vinna megi að málefnum. Ég vil heyra fólk tala staðinn okkar upp og ég vil að kjörnir fulltrúar séu vel undirbúnir og vinni fyrir sveitarfélagið sitt. Ég vil að sjálfsögðu sjá leiðtoga sem drífa aðra með sér hvort sem þeir eru í sveitarstjórn eða ekki.

Fyrir mér er leiðtogi manneskja sem skarar fram úr og framkvæmir hluti. Hann  tekur á erfiðum málefnum og er kannski ekki alltaf vinsælasta manneskjan. Leiðtoginn gerir ekki upp á milli fólks heldur starfar að heilindum og er samkvæmur sjálfum sér. Leiðtoginn er með marga góða með sér, fær fólk með sér og nær markmiðum sem hópurinn, sem hann vinnur með, sækist eftir.

Ég hvet ykkur að kynna ykkur stefnuskrá Óslistans hér í sveitarfélaginu og heyra í fólkinu hvað það vill gera fyrir sveitarfélagið sitt. Við á Óslistanum erum svo heppin að eiga fullt af hæfileikaríku fólki sem vill sjá sveitarfélagið sitt vaxa og dafna. Við eigum leiðtoga sem geta fengið aðra með sér í vinnu. Leiðtoga sem leggja hart að sér, vinna af alúð og áhuga, eru viðkunnanlegir, drífandi og hvetjandi. Leiðtoga sem eru góðir í mannlegum samskiptum og geta sett sig í spor annarra og þannig náum við árangri.

Ég treysti Önnu Margreti 100% til þess að leiða nýja sveitarstjórn. Fyrir utan að hafa starfað sem kennari í bráðum 13 ár og hjálpað þar unga fólkinu okkar að ná markmiðum sínum hefur hún einnig starfað ötullega að félagsmálum í héraði.  Kjörtímabilið 2010-2014 var hún bæjarfulltrúi L-listans þar sem hún sat meðal annars í byggðaráði. Á núlíðandi kjörtímabil hefur hún verið varabæjarfulltrúi ásamt því að vera formaður byggðasamlags um Tónlistarskóla A-Hún, í stjórn Heimilisiðnaðarsafnsins og í Heilbrigðisnefnd Norðurlands-vestra.

Ég vona svo innilega að fólk mæti á kjörstað og kjósi rétt.

Erla Jakobsdóttir
14. sæti Óslistans

Höf. rzg
Fréttir | 08. maí 2024 - kl. 13:49
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt landsáætlun um um riðuveikilaust Ísland. Áætlunin er unnin af starfshópi sem var skipaður í janúar 2024 og gerir hún ráð fyrir umtalsverðri breytingu á nálgun við útrýmingu riðuveiki frá því sem verið hefur. Horft er frá því að reyna að útrýma riðusmitefninu sjálfu en megináhersla lögð á að útrýma veikinni með ræktun fjárstofns sem ber verndandi arfgerðir gegn smitefninu ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu þess.
Glaðheimar
Mynd: usvh.is
Mynd: usvh.is
Fréttir | 08. maí 2024 - kl. 09:14
Húni, ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, er kominn út og að þessu sinni 45. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði.
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 16:06
Húnabyggð ráðgerir að götur og gangstéttir verði sópaðar mánudag 13. maí næstkomandi. Biðlað er til íbúa að hreinsa bílastæði við hús sín og færa bíla og önnur farartæki af götum svo hægt sé að sópa allar götur og gangstéttir.
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 10:39
Sveitarfélagið Skagaströnd hvetur til umhverfis- og plokkdags á Skagaströnd fimmtudaginn 9. maí. Fólk er hvatt til að plokka eða snyrta sitt nærumhverfi svo sem að sópa stéttir eða plön. Gámar verða sunna við Oddagötu 12 og á stígnum meðan við Bankastræti. Pylsur verða grillaðar við Bjarmanes klukkan 13 og eru allir velkomnir.
Pistlar | 07. maí 2024 - kl. 10:35
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Í augum Guðs ert þú ekki mistök. Ekki einhver lítils verður fánýtur einstaklingur eða eins og hvert annað óhapp, misheppnaður aðskotahlutur eða slys. Heldur eilífðar verðmæti. Þú ert eins og ljóð sem hann hefur ort og er að yrkja með þér frá degi til dags. Ástarljóð, óður til lífsins. Ljóð sem ætlað er að bera birtu og yl inn í aðstæður þeirra sem á vegi þínum verða. Já, allra þeirra sem þarf að uppörva og herða.
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 06:23
Haldin verður hópslysaæfing í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra á laugardaginn. Æfingin fer fram ofan við Blönduós, á gatnamótum Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar. Ennisbraut verður því lokuð við Mýrarbraut og Þverárfjallsveg frá klukkan 11 og fram eftir degi. Reikna má með að bifreiðum sem ætlaðar eru til neyðaraksturs verði ekið með forgangsmerkjum á þessum tíma um Ennisbraut og Húnabraut að fjöldahjálparstöð og söfnunarsvæði slasaðra sem verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Laxveiði í Blöndu
Laxveiði í Blöndu
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 15:10
Laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafa verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 og til og með sumrinu 2029 með almennu útboði.
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:55
Tekinn hefur verið í notkun einstaklingsbúningsklefi í Íþróttamiðstöðinni Hvammstanga og er hann staðsettur við hlið gufuklefans. Aðstaðan hentar þeim fjölbreytta hópi sem vill og þarf að hafa fataskipti í einrúmi, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að uppsetning búningsaðstöðunnar sé í samræmi við jafnréttisáætlun sveitarfélagsins en þar kemur fram að aðstaða í skólum og íþróttamiðstöð skuli henta þörfum ólíkra hópa.
Kálfshamarsvík
Kálfshamarsvík
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:48
Sveitarstjórn Skagabyggðar varð fyrir miklum vonbrigðum með nýlega úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið sendi inn tvær umsóknir, annars vegnar vegna hönnunar á Kálfshamarsvíkursvæðinu og hins vegar vegna verndun Kálfshamarsvíkur. Aðeins var úthlutað til hluta þess síðar nefnda og nam hún 3,6 milljónum en sótt var um rúmar 6,7 milljónir.
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:30
Höskuldur Birkir Erlingsson hefur frá árinu 2002 haldið utan um rjúpnatalningu við Blönduós. Ávallt hefur verið talið um mánaðamótin apríl/maí og karrar eingöngu taldir. Samkvæmt nýjustu talningu er rjúpum að fjölga en 91 rjúpa var talin að þessu sinni og er það 25% fjölgun frá fyrra ári. Frá árinu 2021 er fjölgunin 168%. Svæðið sem talið var á afmarkast af Svínvetningabraut og niður með Laxá á Ásum, að þjóðvegi 1 og svo niður að Blönduósi.
Mynd: Auðunn Blöndal
Mynd: Auðunn Blöndal
Pistlar | 06. maí 2024 - kl. 13:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Kornin atarna eiga að minna okkur á aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings kl. 15 á miðvikudaginn í Bóka- og héraðsskjalasafninu Blönduósi. En hér koma þó við sögu, Fjallaskáld og Þórunn sagnfræðingur og rithöfundur sem hefur nýlega skrifað bókina Bærinn brennur um bæjarbruna og morð á Illugastöðum 1828.
Tilkynningar | 06. maí 2024 - kl. 11:54
Frá Birni Þór og Söndru
Fimmtudaginn 9. maí milli klukkan 18:00 og 20:00 langar okkur á B&S Restaurant að bjóða ykkur upp á fiski hlaðborð og meðlæti (frítt en frjálsframlög eru þegin og renna þau til Blönduóskirkju vegna viðhalds og uppsetningu á salernum fyrir fatlaða). Ef þið hafið EKKI áhuga að þiggja þetta boð okkar vinsamlegast hafið samband í síma 898 4685 og afpantið.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:25
Kormákur Hvöt hóf leik í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í dag. Mótherjinn var Selfoss og fór leikurinn fram á Jáverk-vellinum á Selfossi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Staðan í hálfleik 0-0. Selfoss náði að skora eina mark leiksins í seinni hálfleik og var það eiginlega gegn gangi leiksins. Kormákur Hvöt fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 1-0 fyrir Selfoss.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:22
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 6 íbúða raðhúss við Flúðabakka á Blönduósi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar í haust. Um er að ræða fyrri áfanga að þessu verkefni en síðar er stefnt að því að byggja þriggja íbúða raðhús á sama reitnum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið