Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:15 0 0°C
Laxárdalsh. 01:15 0 0°C
Vatnsskarð 01:15 0 0°C
Þverárfjall 01:15 0 0°C
Kjalarnes 01:15 0 0°C
Hafnarfjall 01:15 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 73 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
21:44 20. mars 2023   Hraðhleðslustöð sett upp á Húnabraut 4
Nýlega var undirritaður samningur milli Ámundakinnar og Ísorku um afnot Ísorku af lóð Ámundakinnar á Húnabraut 4, til að setja þar upp hraðhleðslustöð fyrir rafbíla. Stöðin verður staðsett ofan við bílaplanið við veitingastaðinn Teni og upp með Melabrautinni. Afnotasamningurinn er til tíu ára og stefnir Ísorka á að opnað hraðhleðslustöðina á vordögum.
18:22 20. mars 2023   Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendir bréf til fjögurra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Sveitarfélagið Skagaströnd, Húnabyggð og Húnaþing vestra mega eiga von á bréfi frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga á næstunni. Átján önnur sveitarfélög fá sambærilegt bréf og þar á meðal er Sveitarfélagið Skagafjörður. Sagt er frá þessu á vef Fréttablaðsins. Í skriflegu svari nefndarinnar við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að fjárhagsstaða sveitarfélaganna sé æði misjöfn.
15:09 20. mars 2023   Teitur Björn tekur sæti Haraldar á Alþingi
Haraldur Benediktsson, sem setið hefur á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokk í Norðvesturkjördæmi síðan 2013, ætlar að hætta sem alþingismaður en hann hefur ráðið sig sem bæjarstjóra á Akranesi. Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar mun taka sæti Haraldar á Alþingi. Hann segir að landsbyggðarmál verði ofarlega á blaði í sinni pólitík.
13:25 20. mars 2023   Krakkaleikar Hvatar og Vilko
Frá Hvöt
Krakkaleikar Hvatar og Vilko verða haldnir sunnudaginn 26. mars í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Keppnin hefst stundvíslega kl 11:00, gott er að keppendur mæti 15 mín fyrir keppni. Keppt verður í 30m hlaup, langstökki án atrennu, boltakasti og skutlukasti. Mótið er fyrir 6 - 9 ára (2017-2014). Mótið er opið öllum.
09:45 18. mars 2023   Hverfahleðslustöðvar teknar í notkun á Hvammstanga
Fyrstu hverfahleðslustöðvarnar hafa verið teknar í notkun á Hvammstanga. Þær voru settar upp í samstarfi við Orku náttúrunnar með styrk frá Orkusjóði. Tengill ehf. annaðist uppsetningu. Stöðvarnar eru staðsettar við neðra bílaplan Félagsheimilisins á Hvammstanga og við norðurhlið íþróttamiðstöðvar, fjórar stöðvar á hverjum stað. Þorleifur Karl Eggertsson oddviti sveitarstjórnar og Haraldur Sigfús Magnússon sérfræðingur á markaðssviði ON voru fyrstir til að stinga í samband við Félagsheimilið.
09:10 18. mars 2023   Guðsþjónusta í Blönduóskirkju
Guðsþjónusta fer fram í Blönduóskirkju á morgun, sunnudaginn 19. mars klukkan 11. Kirkjukórinn flytur föstusálma undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner. Meðhjálpari er Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari og fermingarbörn ársins flytja bænir og aðstoða við messuna. Í safnaðarsal verða myndir til að lita og kex og djús í boði fyrir krakkana meðan á messu stendur. Allir eru hjartanlega velkomnir.
14:29 17. mars 2023   Jazz-band Tónlistarskóla A-Hún. hitar upp í kvöld
Þann 19. mars n.k. ætlar vaskur hópur ungmenna frá Tónlistarskóla A.-Hún. að bregða undir sig betri fætinum og skella sér til höfuðborgarinnar að spila í Hörpunni. Skólinn hefur komið á fót jazz-bandi sem hugmyndin er að stækki og eflist með ári hverju.
14:05 17. mars 2023   Löggæsluhundar nýtast í fjölmörg verkefni
Lögreglan á Norðurlandi vestra, ásamt Menntasetri lögreglunnar, hefur undanfarna mánuði tekið þátt í lögregluhunda verkefni ásamt pólsku lögreglunni. Verkefnið gengur undir vinnuheitinu „K9 Europe“ og fjallar um þjálfun og notkun lögregluhunda. Í desember síðastliðnum komu tíu lögreglumenn frá Póllandi til Íslands og kynntu sér starfsemi löggæsluhunda og tókst sú heimsókn með ágætum, að því er fram kemur í facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
11:39 17. mars 2023   Körfuboltakrakkar á Norðurlandi vestra að stíga sín fyrstu skref á fjölliðamótum
Feykir.is segir frá því að sameiginleg lið Kormáks og Tindastóls í 7. flokki stúkna og drengja hafi tekið þátt í fjölliðamóti um síðustu helgi. Stúlkurnar spiluðu í Borgarnesi en drengirnir í Vesturbænum. Krakkarnir voru að taka sín fyrstu skref í keppnisferð á körfuboltavellinum. Fram kemur að í stúlkna liðinu er þrjár stelpur frá Hvammstanga, þrjár frá Skagaströnd og tvær frá Tindastóli.
13:14 16. mars 2023   Ingibergur tekur slaginn með Kormáki Hvöt
Nýtt keppnistímabil er handan við hornið hjá Kormáki Hvöt í 3. deildinni í sumar og er liðið hægt og bítandi að taka á sig mynd. „Farfuglar erlendis frá eru að mestu frágengnir, en sönn ánægja er frá því að segja að heimamaðurinn Ingibergur Kort Sigurðsson mun taka slaginn með Kormáki Hvöt í sumar,“ segir á facebook Aðdáendasíðu Kormáks. Ingibergur lék í fyrra 10 leiki með liðinu og skoraði í þeim þrjú mörk, áður en meiðsli styttu sumarið í annan endann.
16:27 15. mars 2023   Evrópski fjárfestingarbankinn fjármagnar uppbyggingu nýrrar kynslóðar byggðalínu
Evrópski fjárfestingarbankinn ætlar að lána Landsneti 63,7 milljónir Bandaríkjadala, jafngildi 9 milljarða króna, til uppbyggingar nýrrar kynslóðar byggðalínu. Landsnet mun þannig nota fjármögnunina til að styrkja flutningskerfi raforku til að mæta vaxandi eftirspurn og stuðla að orkuskiptum, eins og segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins.
15:48 15. mars 2023   Ný rekstrareining stofnuð hjá Húnabyggð
Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur ákveðið að skólaárið 2023-2024 taki til starfa ný rekstrareining hjá sveitarfélaginu sem hafi umsjón með mötuneytisþjónustu í öllum starfsstöðvum grunn- og leikskóla í Húnabyggð. Auglýsa á eftir starfsfólki til að stjórna og reka mötuneytið frá og með ágúst næstkomandi. Ákvörðunin byggir á undangenginni valkostagreiningu sem unni var af skrifstofu sveitarfélagsins.
14:06 15. mars 2023   Þátttakendur óskast í kvennafjölmenningarverkefni
Ert þú kona búsett í Húnaþingi vestra en fædd og uppalin erlendis? Ef svarið er já þá viljum við endilega fá þig með í ljósmyndaverkefni sem verður svo að stórkostlegri ljósmyndasýningu sem opnar á Unglist - Eldi í Húnaþingi sumarið 2023. Sveitarfélagið Húnaþing vesta er í samstarfi við Gretu Clough og listamanninn Juanjo Ivaldi Zaldívar. Með samstarfi þessara þriggja aðila er ætlunin að gera ljósmyndasýningu og vonandi bók um konur af erlendum uppruna sem búsettar eru í Húnaþingi vestra.
13:56 15. mars 2023   Skipulagsmál mögulegra virkjana sett á ís
Sveitarstjórn Húnabyggðar ætlar að staldra við í skipulagsmálum mögulegra virkjana í sveitarfélaginu þar til sanngjörn skipting auðlindarinnar verður fest í lög. Tekur hún jafnframt undir bókanir Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Samtaka orkusveitarfélaga þar sem farið er fram á við ríkisstjórn Íslands að tryggt verði í lögum að hagsmunum þeirra nærsamfélaga þar sem orka á uppsprettu sína njóti efnahagslegs ávinnings.
10:37 14. mars 2023   Héraðsmót USAH innanhús 2023
Frá USAH
Héraðsmót USAH innanhús í frjálsum íþróttum verður haldið laugardaginn 25. mars nk. í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Keppnin hefst stundvíslega klukkan 11:00, gott er að keppendur mæti fyrr til að vera búin að hita upp þegar keppni hefst. Mótið er fyrir 10-19 ára (2004-2013). Keppt verður í 30m hlaupi, hástökki, langstökki án atrennu, kúluvarpi og boðhlaupi.
  1 2 3 4 5 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið