Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:07 0 0°C
Laxárdalsh. 14:07 0 0°C
Vatnsskarð 14:07 0 0°C
Þverárfjall 14:07 0 0°C
Kjalarnes 14:07 0 0°C
Hafnarfjall 14:07 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 91-105 106-120 af 128 Næstu 121-128
KlukkanDagsetningFrétt
10:04 14. mars 2020   Viðbrögð Almannavarna á NV-landi vegna COVID-19 faraldursins
Frá Almannavörnum á Norðvesturlandi
Eins og alþjóð veit þá geisar nú skæður veirufaraldur, sem veldur veikinni COVID-19. Síðan síðastliðinn föstudag, 6. mars, hafa almannavarnir á Íslandi starfað á neyðarstigi almannavarna, sem er hæsta viðbúnaðarstig þeirra. Hluti af viðbrögðum almannavarna er samkomubann, sem tekur gildi á miðnætti aðfaranótt mánudagsins 16. mars og stendur í fjórar vikur. Bannið gerir samkomur með fleiri en 100 þáttakendum óheimilar.
09:48 14. mars 2020   Auglýst eftir tónlistarkennurum
Tónlistarskóli Austur-Húnvetninga auglýsir eftir tónlistarkennurum sem geta hafið störf í haust við skólann. Leitað er eftir kennara á tré- og málmblásturshljóðfæri, gítar, bassa og slagverk og þarf hann að vera með tónlistarkennaramenntun eða haldgóða tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og góða færni á sín hljóðfæri, vera fær í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinna með börnum. Þá þarf viðkomandi að vera metnaðarfullur, áreiðanlegur og áhugasamur.
16:14 13. mars 2020   Uppfært - Ekkert smit staðfest á Norðurlandi vestra
Ekkert Covid-19 smit hefur verið staðfest á Norðurlandi vestra en fyrr í dag sögðum við frá því að eitt smit hefði verið staðfest. Þær upplýsingar voru fengnar af vefnum covid.is en reyndust rangar og hafa þær nú verið leiðréttar. Við sögðum einnig frá því í sömu frétt að á vefjum sveitarfélaga í Húnavatnssýslum eru skilaboð frá sveitarstjórum vegna Covid-19 faraldursins og aðgerða yfirvalda vegna hans. Biðlað er til íbúa að sýna skynsemi.
16:03 13. mars 2020   Fyrirlestri Baldurs Þórs á Hvammstanga frestað
Fyrirlestri Baldurs Þórs Ragnarssonar, sem fara átti fram í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga á morgun klukkan 14 hefur verið frestað. Baldur Þór, sem er þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfubolta og styrktarþjálfari, ætlaði að ræða liðsmenningu og markmiðastjórnum í tengslum við störf sín. Frestunin er fyrirbyggjandi aðgerð vegna Covid-19.
12:20 13. mars 2020   Mikil áhrif COVID-19 faraldursins
Áhrif COVID-19 faraldursins á íslenskt samfélag verða stöðugt meiri. Búið er að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur tímabundið í fjórar vikur frá og með næsta mánudegi, skólastarf verður takmarkað næstu fjórar vikurnar og kennsla í háskólum og framhaldskólum um allt land felld niður. Þá fellur allt messuhald og vorfermingar niður í Þjóðkirkjunni.
11:42 13. mars 2020   Heimildarmynd um Isolation Game Jam
Gerð hefur verið 30 mínútna heimildarmynd um Isolation Game Jam leiksmiðjuna sem haldin hefur verið undanfarin ár á sveitabænum Kollafossi í Húnaþingi vestra. Game jam er nokkurs konar smiðja sem tíðkast reglulega hjá leikjahönnuðum og áhugafólki um leikjahönnun. Viðburðirnir eru opnir þar sem fólk hittist og skapar leiki á stuttum tíma eða með fyrirfram ákveðnum reglum og áskorunum.
11:23 13. mars 2020   Samkomubann tekur gildi á mánudaginn
Samkomubann verður sett á hérlendis vegna COVID-19 faraldursins. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem heilbrigðisráðherra efndi til í Ráðherrabústaðnum í morgun. Tak­marka skal sam­kom­ur í fjór­ar vik­ur frá aðfaranótt mánu­dagsins. Um er að ræða sam­kom­ur þar sem fleiri en 100 manns koma sam­an. Á viðburðum þar sem færri koma sam­an er gert ráð fyr­ir því að tveir metr­ar séu á milli fólks. Gert er ráð fyr­ir því að skól­ar á fram­halds- og há­skóla­stigi loki.
10:40 13. mars 2020   Frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild að til víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku.
10:37 13. mars 2020   Snjósöfnun undir háspennulínum
Mikið hefur snjóað á Þverárfjalli og hefur hann hlaðist undir háspennulínu RARIK á svæðinu frá Þverá til Hvammshlíðar. Snjórinn er nú orðinn svo mikill að vírinn þar sem hann er lægstur er kominn niður fyrir tvo metra. Næstkomandi mánudag á að reyna að ryðja snjó undan línunni ef aðstæður leyfa. Um fleiri kafla á línunni getur verið að ræða og fólk sem á leið um svæðið er vinsamlegast beðið um að sýna varkárni.
11:44 12. mars 2020   Námsstyrkir til nemenda með lögheimili á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir námsstyrki sem nemendur á framhalds- og háskólastigi eiga rétt á samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Þurfa þeir að eiga lögheimili á Skagaströnd og uppfylla skilyrði reglna um styrkina. Námstyrkur til hvers nemanda nemur 20 þúsund krónum skólaárið 2019-2020 og er hann veittur til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð. Umsóknarfrestur er 10. apríl næstkomandi.
10:48 12. mars 2020   Hvetjum til notkunar rafrænna samskipta
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra hvetur til notkunar rafrænna samskipta. Minnum á www.island.is og www.syslumenn.is eru alltaf aðgengilegar. Hvetjum viðskiptavini til að nota sér rafrænar þjónustuleiðir í samskiptum, svo sem að senda fyrirspurnir í tölvupósti á nordurlandvestra@syslumenn.is eða innheimta@syslumenn.is . Síminn hjá okkur er 458-2500 þar er svarað kl. 9.00 - 15.00.
08:07 12. mars 2020   Súpukvöldi á Skagaströnd frestað
Frá Soroptimistaklúbbnum Við Húnaflóa
Súpukvöldi Soroptimistaklúbbsins Við Húnaflóa sem vera átti á Skagaströnd í kvöld hefur verið frestað. Ný dagsetning verður auglýst þegar þær upplýsingar liggja fyrir.
13:18 11. mars 2020   Rýna þarf ýmis atriði í tengslum við sameiningu sveitarfélaganna
Á fundum ráðgjafa RR ráðgjafar með sveitarstjórnum í Austur-Húnavatnssýslu hafa komið fram ákveðnir fyrirvarar í tengslum formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna. Í fundargerð sameiningarnefndar A-Hún. frá 25. febrúar síðastliðnum kemur fram að sveitarstjórn Skagastrandar hafi lagt fram ósk um að unnið yrði að því að finna samhljóm og sameiginlega megin hagsmuni á svæðinu. Þá kom fram ósk frá sveitarstjórn Húnavatnshrepps um að mörkuð yrði stefna varðandi framtíðarverkefni á Húnavöllum ef skólahald þar leggist af.
13:00 11. mars 2020   Fimm þúsund krónur fyrir skil á merktum hrognkelsum
Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf. á Skagaströnd hafa um langt árabil átt í samstarfi um merkingar á hrognkelsum. Í fyrra og hittifyrra voru 760 ungfiskar merktir í alþjóðlegum markíl leiðangri norður og suður af Íslandi og við austurströnd Grænlands. Á vef Biopol segir að ekki sé vitað til þess að ungviði hafi áður verið merkt með þessum hætti og að endurheimtur geti gefið mjög mikilvægar upplýsingar um vöxt hrognkelsa og hvert þau gangi til hrygningar.
09:25 11. mars 2020   Gul veðurviðvörun í dag
Gul veðurviðvörun er í gildi í dag á Norðurlandi vestra. Gert er ráð fyrir norðaustan 15-23 metrum á sekúndu og talsverðri snjókomu og skafrenningi, einkum í Skagafirði, á Tröllaskaga og á Ströndum. Búast má við takmörkuðu skyggni og lélegum akstursskilyrðum. Vegurinn um Þverárfjall er lokaður og sömu sögu er að segja um veginn yfir Öxnadalsheiði.
Fyrri 91-105 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næstu 121-128
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið