Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 5. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:48 0 0°C
Laxárdalsh. 11:48 0 0°C
Vatnsskarð 11:48 0 0°C
Þverárfjall 11:48 0 0°C
Kjalarnes 11:48 0 0°C
Hafnarfjall 11:48 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-60 af 128 Næstu 61-75
KlukkanDagsetningFrétt
10:07 25. mars 2020   Góð gjöf fyrir íbúa Sæborgar
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd barst góð gjöf í gær. Nokkur fyrirtæki tóku sig saman og gáfu heimilinu Ipad ásamt öllu sem til þarf svo íbúar geti haft samband í mynd við ættingja og vini. Á Facebook síðu Sæborgar kemur fram að íbúar taki heimsóknarbanninu, sem staðið hefur yfir í 18 daga, með miklu jafnaðargeði, enda „kannski ekki við öðru að búast af fólki sem hefur upplifað tímanna tvenna.“
08:48 25. mars 2020   Smitum fjölgar í Húnaþingi vestra
Sextán Covid-19 smit hafa verið staðfest í Húnaþingi vestra og eru 290 einstaklingar skráðir í sóttkví í sveitarfélaginu eða um 24% íbúa. Alls hafa 69 sýni verið tekin, þarf af eru 43 neikvæði, en ekki eru komnar niðurstöður úr tíu sýnum. Vegna ástandsins eru daglegir fundir hjá vettvangsstjórn og aðgerðastjórn á Sauðárkróki og hjá stjórnendum sveitarfélagsins. Þá funda skólastjórnendur daglega með sínu fólki. Allar stofnanir sveitarfélagsins eru lokaðar fyrir gestakomum.
22:06 24. mars 2020   Höfðaskóla lokað í varúðarskyni
Upp er kominn grunur um Covid-19 smit í Höfðaskóla á Skagaströnd. Skólanum hefur því verið lokað í varúðarskyni. Kennsla færist alfarið yfir í fjarkennslu frá og með morgundeginum 25. mars. Fyrirkomulag kennslunnar verður með þeim hætti þangað til niðurstöður eru komnar úr sýnatöku. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Höfðaskóla í dag.
21:47 24. mars 2020   Fimm gjaldfrjáls fjarnámskeið í boði
Farskólinn í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurandi vestra og Stéttarfélögin Ölduna, Verslunarmannafélag Skagafjarðar, Sameyki, Samstöðu og Kjöl býður íbúum Norðurlands vestra á fimm fjarnámskeiða sem öll verða haldin fyrir páska. „Námskeiðin eru sniðin að aðstæðum sem við öll búum við á þessum fordæmalausu tímum og geta vonandi nýst íbúum svæðisins. Þessi námskeið eru öllum opin og gjaldfrjáls fyrir alla íbúa svæðisins. Það er von okkar allra sem að þessu stöndum að þetta nýtist og þið hafið gagn og gaman af,“ segir í tilkynningu á vef SSNV.
18:13 24. mars 2020   Miðlæg afleysingaþjónustu fyrir bændur
Bændasamtökin, í samstarfi við aðildarfélög sín, vinna að því að koma á fót miðlægri afleysingaþjónustu fyrir bændur. Óskað er eftir áhugasömum aðilum á viðbragðslista sem geta leyst tímabundið af á búum komi til þess að bændur veikist af Covid-19 veirunni. Bændur þurfa að hafa vinnuhandbók aðgengilega komi til þess að kalla þurfi eftir afleysingu.
12:49 24. mars 2020   Pistill sveitarstjóra á heimasíðu Blönduósbæjar
Frá Valdimari O. Hermannssyni, sveitarstjóra Blönduóssbæjar
Eftir fyrstu viku í samkomubanni þá er mér þakklæti efst í huga, fyrir þá samstöðu sem við sem samfélag höfum öll sýnt, við þessar fordæmalausu aðstæður. Sérstaklega ber að þakka skólastjórnendum, bæði leik og grunnskóla, fyrir flókna skipulagningu, við það að halda starfsemi skólanna gangandi, þó það sé með breyttu sniði, og einnig öðrum starfsmönnum.
11:37 24. mars 2020   Engar blóðprufur teknar næstu vikur nema að höfðu samráði við lækni
Tilkynning frá HSN á Blönduósi og Skagaströnd
Vegna skertrar starfsemi heilsugæslunnar eru ekki teknar blóðprufur næstu vikur nema að höfðu samráði við lækni. Bóka þarf tíma áður en mætt er.
11:04 24. mars 2020   Aðgerðir til viðspyrnu vegna COVID-19
Blönduósbær ætlar að koma til móts við þá sem verða fyrir tekjutapi á næstu mánuðum vegna áhrifa frá Covid-19 faraldrinum, óski þeir þess. Hægt verður að fresta gjalddögum fasteignagjalda sem sett hafa verið á næstu þrjá mánuði, þ.e. 1. apríl, 1. maí og 1. júní, um sjö mánuði. Vegna röskunar á þjónustu stofnana sveitarfélagsins, svo sem hjá leikskóla, grunnskóla, skóladagheimili og mötuneyti og fleiri þess háttar, hefur sveitarstjóra verið falið að endurskoða innheimtu með tilliti til notkunar og skerðingar þjónustunnar, að lágmarki fimm virka daga samfellt.
20:31 23. mars 2020   Atvinnuráðgjafar SSNV til þjónustu reiðubúnir
Atvinnuráðgjafar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru til þjónustu reiðubúnir fyrir atvinnurekendur í landshlutanum. Búast má við að margir séu í óvissu með rekstur sinn vegna þeirra neikvæðu efnahagslegu áhrifa sem Covid-19 faraldurinn veldur. Stjórnvöld hafa kynnt ýmis úrræði en enn er óvíst um framkvæmd þeirra og hvað þau í raun þýða fyrir fyrirtæki og einstaklinga. „Við munum fylgjast grannt með framvindunni og miðla upplýsingum til fyrirtækja í landshlutanum,“ segir á vef samtakanna.
20:04 23. mars 2020   Samráðshópur um áfallahjálp virkjaður
Samráðshópur um áfallahjálp í Húnavatnssýslum hefur verið virkjaður vegna Covid-19 smits í Húnaþingi vestra. Í hópnum eru fulltrúar frá Rauða krossinum, þjóðkirkjunni, félagsþjónustu, heilsugæslu og lögreglu og hafa þeir verið í sambandi við skjólstæðinga og viðbragðsaðila. Íbúum á svæðinu er velkomið að hringja í fulltrúa hópsins varðandi ýmis úrlausnarefni eða beiðni um sálrænan stuðning.
19:44 23. mars 2020   Frá Héraðsskjalasafni Austur-Húnavatnssýslu
Safnið verður lokað í óákveðinn tíma og ekki tekið við afhendingum en starfsmenn vinna að heiman eins og hægt er. Svo er hægt að hafa samband á netfangið skjalhun@blonduos.is og fyrirspurnir afgreiddar eins og kostur er.
13:13 23. mars 2020   Tilkynning frá Héraðsbókasafni A-Hún.
Bókasafnið verður lokað frá og með þriðjudeginum 24. mars í takt við hertar takmarkanir í yfirstandandi samkomubanni. Við munum þó áfram bjóða upp á útlánaþjónustu á meðan. Hægt er að panta bækur í síma 452 4415 eða hér á Facebooksíðu safnsins. Einnig má senda póst á bokasafn@blonduos.is. Bækur eru sprittaðar áður en þær eru afhentar og meðhöndlað með hönskum.
21:31 22. mars 2020   Tilkynning frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi verður lokuð frá og með morgundeginum og til og með 12. apríl næstkomandi. Heil­brigðisráðherra hef­ur ákveðið, í sam­ræmi við til­lögu sóttvarna­lækn­is, að tak­marka sam­kom­ur enn frek­ar en áður vegna hraðari út­breiðslu COVID-19 í sam­fé­lag­inu.
20:14 22. mars 2020   Breyting á innheimtu gjalda í Húnaþingi vestra
Í ljósi þess að Covid-19 faraldurinn hefur valdið miklu raski á allri starfsemi í Húnaþingi vestra, bæði hjá fyrirtækjum og heimilum, með fyrirsjáanlegu tapi á næstu mánuðum, hefur sveitarfélagið ákveðið að breyta gjalddögum fasteignagjalda 2020. Gjalddagar sem vera áttu 1. apríl, 1. maí og 1. júní breytast í 1. september, 1. október og 1. nóvember.
18:09 22. mars 2020   Hert samkomubann
Ekki fleiri en 20 mega koma saman
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum. Ákvörðunin tekur gildi á miðnætti annað kvöld. Takmörkun á skólahaldi verður óbreytt.
Fyrri 31-45 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næstu 61-75
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið