Holtavörðuh. |
09:33 |
0 |
0°C |
Laxárdalsh. |
09:33 |
0 |
0°C |
Vatnsskarð |
09:33 |
0 |
0°C |
Þverárfjall |
09:33 |
0 |
0°C |
Kjalarnes |
09:33 |
0 |
0°C |
Hafnarfjall |
09:33 |
0 |
0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víða Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa
|
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Senda Húnahorninu fréttaskot
N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
|
10:47 |
03. mars 2020 |
Prjónakvöld í Hnitbjörgum
Haldin verða prjónakvöld í kjallara Hnitbjargar, að Flúðabakka 4 á Blönduósi, 4. og 18. mars frá klukkan 19:30-21:30. Prjónakvöldin eru öllum opin. Komum saman og eigum notalega kvöldstund, Engin skylda að vera með handavinnu, líka gott að koma og fá sér kaffisopa og spjalla. Hlökkum til að sjá ykkur, segir í tilkynningu frá Sísu og Birnu. |
17:42 |
02. mars 2020 |
Skorað á ráðuneytið um fjármagn í flugvöllinn
Áætlaður kostnaður við endurbætur á Blönduósflugvelli, svo hann uppfylli kröfur um lágmarksbúnað er á bilinu 5-7 milljónir króna. Það helsta sem þarf að gera er að setja upp GPS aðflugsbúnað/stýringu og endurnýja eða stilla svokölluð PAPI-brautarljós, til að auðvelda aðflug og lendingu á vellinum. Byggðaráð Blönduósbæjar ítrekaði á fundi sínum í síðustu viku mikilvægi flugvallarins og skoraði á samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að veita í verkefnið sjö milljónum króna til að unnt verði að uppfylla kröfur um lágmarksbúnað sem allra fyrst. |
13:41 |
02. mars 2020 |
Aðalfundur sunddeildar Hvatar
Aðalfundur sunddeildar Hvatar verður haldinn miðvikudaginn 4. mars næstkomandi klukkan 20:00 í norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Okkur vantar fleiri í stjórn, er ekki einhver tilbúinn að vera með okkur? Endilega hafið samband: hvotsund@gmail.com |
10:41 |
02. mars 2020 |
Bingó í Húnavallaskóla á föstudaginn
Nemendur í 9. og 10. bekk Húnavallaskóla halda sitt árlega stór-bingó föstudaginn 6. mars næstkomandi. Húsið opnar klukkan 19:30 og byrjað verður að spila klukkan 20:00. Allir eru velkomnir. Það verða stórir og veglegir vinningar. Allir geta unnið eitthvað því það verður tombóla og þar eru engin núll. Auðvitað verður sjoppan á sínum stað og hægt að kaupa fullt af nammi, gosi og fleira góðgæti. |
08:17 |
29. feb. 2020 |
Misjafnlega staðið að undirbúningi fyrir veðurofsann í desember
Í samantekt Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir átakshóp stjórnvalda vegna óveðursins í desember segir að Veðurstofan, Vegagerðin, sveitarfélögin og fyrirtækin í landshlutanum hafi staðið sig vel í undirbúningi fyrir óveðrið. Það hafi orðið til þess að íbúar og ferðafólk hafi ekki verið á ferli eftir að veðrið skall á sem komið hafi í veg fyrir óþarfa álag á viðbragðsaðila. Það sama eigi ekki við um þær stofnanir sem reki mikilvægustu innviðina. |
07:51 |
29. feb. 2020 |
Umsóknir um orlofshús 2020
Frá Stéttarfélaginu Samstöðu
Nú er komið að sumarúthlutun 2020 og geta félagsmenn okkar sótt um vikudvöl á eftirfarandi stöðum: Illugastöðum, Einarsstöðum, Stykkishólmi, Ölfusborgum og Jötnagarðsás við Munaðarnes.
Félagsmenn geta nálgast umsóknareyðiblaðið á heimasíðu félagsins www.samstada.is sent í tölvupósti, prentað út eða nálgast það á skrifstofum félagsins á Blönduósi eða Hvammstanga.
Umsóknum sé skilað á skrifstofur félagsins eigi síðar en 27.mars n.k. |
|
|
03. febrúar 2023 Á ferðalagi Guðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa
|