14:51 |
10. jún. 2020 |
Kvennahlaup ÍSÍ 2020
Árlegt Kvennahlaup ÍSÍ í samstarfi við Sjóvá fer fram laugardaginn 13. júní á Blönduósi og hefst kl. 10:00. Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni og verða 2 vegalengdir í boði, 2,5km og 5,0km. |
11:19 |
10. jún. 2020 |
Mikill áhugi á störfum hjá SSNV
Mikill áhugi er að starfa hjá Samtökum sveitarfélag á Norðurlandi vestra ef marka má fjölda umsókna um tvö störf sem samtökin auglýstu nýverið. Auglýst var starf atvinnuráðgjafa með áherslu á nýsköpun og starf við bókhald og almenn skrifstofustörf. Umsóknarfrestur rann út 7. júní síðastliðinn og bárust samtals 70 umsóknir um störfin, 34 um sóknir um starf atvinnuráðgjafa og 36 umsóknir vegna bókhalds- og skrifstofutarfs. |
10:52 |
10. jún. 2020 |
Prjónasamkeppni 2020
Frá Textílmiðstöð Íslands
Undanfarin ár hefur Textílmiðstöð Íslands haldið Prjónagleði aðra helgina í júní á Blönduósi en laugardagurinn sá er alþjóðlegi prjónadagurinn. Vegna kórónuveirunnar var ekki annað í stöðunni en að fresta hátíðinni og verður hún haldin 11.-13. júní að ári. Hlökkum við til að sjá sem flesta þá.
Ekki þýðir að leggja upp laupana eða prjónana þrátt fyrir þetta og var því ákveðið að halda prjónasamkeppni eins og árin á undan. |
22:37 |
09. jún. 2020 |
Tiltektardagur í kirkjugarðinum
Frá stjórn og umsjónarmanni kirkjugarðsins á Blönduósi
Sunnudaginn 14. júní næstkomandi klukkan 12-16 ætla velunnarar kirkjugarðsins að mæta í garðinn og rífa og snyrta eftir því sem tími vinnst til. Umsjónamaður garðsins, ásamt nokkrum stjórnamönnum, aðstoða fólk við að laga leiði t.d. ef minningarsteinar eru farnir að hallast. Mold, sandur og mulningur eru á staðnum og ef þarf verður meira sótt. |
10:43 |
09. jún. 2020 |
Ámundakinn hagnaðist um 11,7 milljónir í fyrra
Aðalfundur Ámundakinnar ehf. var haldinn síðastliðinn föstudag. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf, þar á meðal samþykkt ársreiknings en árið 2019 var 16. starfsár félagsins. Samkvæmt ársreikningi nam hagnaður félagsins 11,7 milljónum króna samanborið við 636 þúsund krónur árið 2019. Betri afkoma skýrist helst af fleiri leigjendum, sameiningu og batnandi afkomu hlutdeildarfélaga. Leigutekjur námu rúmum 112 milljónum og jukust um 44% milli ára. |
09:11 |
09. jún. 2020 |
Gönguhópur Blönduóss gengur með Snjódrífunum
ATH. breyttur tími á laugardaginn
Gönguhópur Blönduóss ætlar að ganga með Snjódrífunum sem arka nú yfir Vatnajökul en þær hvetja landsmenn til að ganga með þeim í sinni heimabyggð þá daga sem þær eru að ganga á jöklinum. Við látum okkur ekki vanta í þetta verðuga verkefni, segir í tilkynningu frá Gönguhóp Blönduóss og verður gengið saman eftirfarandi sem hér segir: |
09:00 |
09. jún. 2020 |
Fjáröflun fyrir Orkumótið í Vestmannaeyjum
Strákarnir í 6. flokki karla í fótbolta ætla að skella sér til Vestmannaeyja þann 24. júní 2020 og taka þátt í Orkumótinu. Þeir eru á fullu í fjáröflun fyrir mótið og eru af því tilefni að selja kjöt frá SAH. Tveir pakkar eru til sölu en þeir eru útilegupakkinn og áleggspakkinn. |
08:01 |
09. jún. 2020 |
Golfkynning
Frá Golfklúbbnum Ós
Hefur þú stundum velt því fyrir þér hvort golf sé eitthvað fyrir þig? Nú er tækifærið! Þórður Rafn býður upp á kynningu á golfíþróttinni ykkur að kostnaðarlausu. Kynningin fer fram föstudaginn 12. júní milli klukkan 17-18 á Vatnahverfisvelli.
Hægt er að bóka pláss á námskeiðum sem fram fara um helgina ef áhugi er fyrir hendi eftir kynninguna. |
16:11 |
08. jún. 2020 |
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands laugardaginn 27. júní 2020
Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga, sem fram eiga að fara 27. júní 2020, er hafin á skrifstofum embættis sýslumannsins á Norðurlandi vestra og verður sem hér segir:
Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til kl. 15:00.
Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til kl. 15:00. |
09:43 |
08. jún. 2020 |
Minningarskilti um Bangsa afhjúpað
Minningarskilti um Björn Þóri Sigurðsson, Bangsa eins og hann var gjarnan nefndir, var afhjúpað á Hvammstanga í gær, á sjómannadaginn. Athöfnin hófst með messu á Bangsatúni þar sem sr. Magnús Magnússon, sóknarprestur á Hvammstanga, þjónaði og prédikaði. Kirkjukór Hvammstanga söng undir stjórn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur organista. Að lokinni messunni var minningarskiltið afhjúpað og síðan var boðið upp á veitingar undir bláhimni. Fjölmenni var við athöfnina. |
19:49 |
07. jún. 2020 |
Opnunarholl Blöndu með níu laxa
Laxveiði hófst í Blöndu á föstudaginn og komu fjórir laxar á land þann daginn. Opnunarhollið lauk veiði á hádegi í dag og endaði með níu veidda laxa. Stærsta laxinn veiddi Sigmundur Sigurðsson, 90 sentímetra langa hrygnu. Aðstæður til veiða í Blöndu voru ágætar, vatnsstaða góð og veðrið fínt. Svo virðist sem að ekki sé mikið af laxi kominn í ána ennþá en samt var hann að sýna sig töluvert í gærkvöldi. Þar má meðal var smálax sem þykir óvenjulegt svona snemma. |
18:54 |
07. jún. 2020 |
Tindastóll hafði betur í Mjólkurbikarnum
Tindastóll og sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar mættust á gervigrasinu á Sauðárkróki í dag í fyrsta leik sumarsins í knattspyrnu karla. Leikurinn var liður í 1. umferð Mjólkurbikarsins. Gestirnir voru yfir í hlé með marki Hilmars Þórs Kárasonar sem koma á 18. mínútu. Stólarnir jöfnuðu leikinn á 72. mínútu með marki frá Hjörleifi Hafstað Arnórssyni og komust svo yfir á 77. mínútu með marki frá Luke Morgan Conrad Rae. Og þannig endaði þessi bráðskemmtilegi leikur, 2-1 fyrir Tindastól. |
09:48 |
07. jún. 2020 |
Kynningarfundur um nýsköpun og frumkvöðlastarf á Sauðárkróki
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita sækir Sauðárkrók heim föstudaginn 12. júní og býður áhugasömum að sækja stutta vinnustofu um þróun viðskiptahugmynda. Til sjávar og sveita býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar fyrir verkefni sem snúa að matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi. |
08:33 |
07. jún. 2020 |
Sumaræfingar hefjast hjá Fram
Sumaræfingar Ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd byrja á morgun, 8. júní. Sumarið verður lotuskipt fyrir yngsta hópinn með nokkrum skemmtilegum námskeiðum og svo verða reglulegar æfingar fyrir eldri hópana. Á Facebook síðu Fram verður hægt að sjá upplýsingar ef breytingar verða á dagskrá og ýmislegt fleira. Sumarstarfinu lýkur 21. ágúst og þá er stefnt á grillpartý. |
09:48 |
06. jún. 2020 |
Golfnámskeið í Vatnahverfi um næstu helgi
Þórður Rafn Gissurarson atvinnukylfingur verður með golfnámskeið á Blönduósi helgina 12.-14. júní næstkomandi. Boðið verður upp á byrjendanámskeið, krakkanámskeið, hóp- og einkakennslu og námskeiðið Æfðu eins og atvinnukylfingur. Þórður er 32 ára að aldri og hefur stundað golf frá því hann var sex ára. Hann gerðist atvinnukylfingur 25 ára og hefur spilað mestmegnis á þýsku Pro Golf Tour atvinnumótaröðinni. |