12:54 |
23. jún. 2020 |
Félagsmiðstöð í sumar fyrir íbúa 60 ára og eldri
Húnaþing vestra ætlar í sumar að bjóða upp á félagsmiðstöð fyrir íbúa 60 ára og eldri sem staðsett verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga, neðri hæð, þar sem dreifnámið er. Fyrirhugað er að hafa opið einu sinni til tvisvar í viku og bjóða upp á kaffi, spjall, ráðgjöf, örnámskeið eða gönguhóp. |
09:24 |
23. jún. 2020 |
Stutt myndbönd af perlum Norðurlands vestra
Norðvestur eða Nordvestur eru Youtube, Facebook og Instagram síður með myndböndum af perlum Norðurlands vestra. Þau eru framleidd af Helga Sæmundi Guðmundssyni í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Helgi festir á filmu nokkra af hápunktum landshlutans og pakkar þeim snyrtilega inn með frumsaminni tónlist í stutt myndbönd. |
15:21 |
22. jún. 2020 |
Blönduskóli auglýsir eftir starfsfólki fyrir næsta skólaár
Blönduskóli auglýsir eftir starfsfólki fyrir skólaárið 2020 - 2021. Blönduskóli er framsækinn skóli í mikilli þróun með tæplega 150 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann. |
21:21 |
21. jún. 2020 |
Stórlaxar veiðast í Húnavatnssýslum
Tveir laxar sem mældust 101 sentímetrar veiddust í Húnavatnasýslum um helgina, einn í Víðidalsá í gær og hinn í Blöndu í morgun. Laxinn í Víðidalsá var hængur en um hrygnu var að ræða í Blöndu. Í báðum þessum ám hafa ekki veiðst stærri laxar sem af er sumri. Pétur Hafsteinn Pálsson veiddi laxinn í Blöndu á Frances með kón sem tók fluguna neðst í gilinu rétt við aðal tökustað Breiðunnar. |
21:11 |
21. jún. 2020 |
Enn skelfur jörð
Skjálfti af stærð 5,7 varð rúma 30 kílómetra norðaustur af Siglufirði klukkan 19:07 í kvöld. Hann er sá stærsti sem orðið hefur í skjálftahrinu sem hófst um hádegi á föstudaginn. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi en upptök hans eru talsvert fjær landi en fyrri skjálftar og því voru áhrifin ekki eins mikil inn til landsins að því er segir á vef Veðurstofu Íslands. |
19:01 |
21. jún. 2020 |
Jafntefli í fyrsta leik
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar spilaði sinn fyrsta leik í B riðli á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla 4. deild í dag þegar það heimsótti Knattspyrnufélag Rangæinga en spilað var á SS-vellinum á Hvolsvelli. Leikurinn var tíðindalítill framan af og staðan í hálfleik jöfn 0-0. Heldur lifnaði yfir leiknum í seinni hálfleik og komst KFR yfir með marki á 68. mínútu.
|
12:58 |
21. jún. 2020 |
Unnu Huginsbikarinn í Eyjum
Ellefu fótboltastelpur frá Kormáki á Hvammstanga, Hvöt á Blönduósi og Fram á Skagaströnd héldu til Vestmannaeyja til að taka þátt á TM mótinu sem fram fór dagana 11.-13. júní en mótið er fyrir stelpur í 5. flokki. Þær æfa fótbolta á sínu heimasvæði en hittast svo af og til og taka æfingu saman. Mótið er stærsta mót sumarsins fyrir stelpur í 5. flokki og var þetta fjölmennasta mót frá upphafi, um 100 lið tóku þátt. |
10:10 |
21. jún. 2020 |
Jarðskjálftahrina á Norðurlandi
Áframhaldandi skjálftavirkni er á svæðinu norðaustur af Siglufirði. Tveir stærstu skjálftarnir í gær mældust 5,4 og 5,6 að stærð. Þeir fundust um allt Norðurland og alla leið suður í Borgarfjörð. Um klukkan þrjú í nótt mældist skjálfti yfir fjórum að stærð og í kjölfarið komu tveir eftirskjálftar yfir þremur að stærð. Engir stórir skjálftar hafa mælst síðan þá en Veðurstofan hvetur fólk á svæðinu til að hafa varann á. |
17:17 |
20. jún. 2020 |
Jarðskjálftinn fannst vel í Húnavatnssýslu
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi
Jarðskjálfti, 5,3 að stærð, sem varð klukkan 15:05 í dag um 20 kílómetra norðaustur af Siglufirði fannst vel í Húnavatnssýslu. Fjöldi eftirskjálfta hefur komið í kjölfarið, sex þeirra stærri en 3 og sá stærsti 3,9. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist víða á Norðurlandi. Jaðrskjálftahrina hófst í gær um 20 kílómetra norðaustur af Siglufirði og stendur enn. |
10:06 |
20. jún. 2020 |
Hljóðver á Hótel Laugarbakka
Á Hótel Laugarbakka má finna glæsilega aðstöðu til þess að taka upp tónlist, allt frá stórum kórum niður í einstök hljóðfæri eða raddir. Í þættinum Að Norðan á sjónvarpsstöðin N4 er rætt við Örn Arnarsson, framkvæmdastjóra hótelsins og segir hann frá tilurð hljóðversins en hugmyndin kom úr óvæntri átt, mögulega norðvestanátt, því sagan hófst nefnilega í óveðrinu í vetur. |
11:37 |
19. jún. 2020 |
Guðrún Helga er nýr formaður USVH
Guðrún Helga Magnúsdóttir tók við sem formaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga á ársþingi sambandsins sem fram fór 15. júní síðastliðinn. Hún tók við af Reimari Marteinssyni, sem setið hefur í formannsstólnum síðastliðin sex ár. Guðrún Helga er meðal yngstu formanna sambandsaðila og aðildarfélaga Ungmennafélags Íslands en hún er 23 ára og búsett á Hvammstanga. |
10:27 |
19. jún. 2020 |
Stórlax veiddist í Austurá í Miðfirði
Laxveiði er hafin í Miðfjarðará og Laxá á Ásum og hefst í Vatnsdalsá og Víðidalsá um helgina. Tveir laxar komu á land á fyrstu vaktinni í Ásunum en mikið líf var í ánni sem lofar góðu. Stórlax veiddist í Laxapolli í Austurá í Miðfirði á miðvikudaginn og mældist hann 98 sentímetrar. Samkvæmt veiðitölum frá Landssambandi veiðifélaga höfðu veiðst 20 laxar í Miðfjarðará í lok dags 17. júní. Blanda hafið á sama tíma skilað 20 löxum en hún opnaði 5. júní síðastliðinn. |
10:18 |
19. jún. 2020 |
4. deildin í knattspyrnu karla farin af stað
Íslandsmótið í knattspyrnu karla 4. deild er farið af stað. Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar leikur í B riðli mótsins ásamt sex öðrum liðum. Fyrstu leikir A, C og D riðla fór fram í vikunni en B riðillinn fer af stað í dag. Fyrsti leikur Kormáks/Hvatar verður á SS-velli Knattspyrnufélags Rangæinga á sunnudaginn, 21. júní klukkan 16. Kormákur/Hvöt leikur fyrstu þrjá leikina á útivelli en næstu þrír þar á eftir verða heimaleikir. Fyrsti heimaleikurinn fer fram á Blönduósvelli 12. júlí. |
11:38 |
18. jún. 2020 |
Sumarleikhús æskunnar í Húnaþingi vestra
Í sumar stendur Handbendi Brúðuleikhús fyrir Sumarleikhúsi æskunnar í Húnaþingi vestra en þetta þriggja vikna verkefni er opið öllum börnum og ungmennum á aldrinum 7-18 ára. Sumarleikhúsið stendur yfir frá 27. júlí - 14. ágúst, er leikhús- og leiklistarsmiðja, og fer fram fjórum sinnum í viku. |
09:08 |
18. jún. 2020 |
Aðalfundur Hollvinasamtaka HSN Blönduósi
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka HSN Blönduósi verður haldinn í fundarsal stofnunarinnar annari hæð, mánudaginn 29. júní næstkomandi klukkan 17:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Minnum á styrktarreikninginn okkar 0307-26-270 kt: 490505-0400. |