Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 8. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:36 0 0°C
Laxárdalsh. 03:36 0 0°C
Vatnsskarð 03:36 0 0°C
Þverárfjall 03:36 0 0°C
Kjalarnes 03:36 0 0°C
Hafnarfjall 03:36 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Pistlar | 09. nóvember 2018 - kl. 09:08
Draumur sem rættist
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Veistu að eitt sinn varst þú aðeins draumur. Fallegur draumur í huga Guðs. Draumur sem rættist.

Í mínum huga er ekkert fallegra en þegar nýtt líf kviknar. Þegar barn verður til í móðurkviði og foreldrar, afar og ömmur, systkini og ættingjar bíða svo barnslega spennt eftir að nýja lífið líti loks ljós þessa heims. Fátt ef nokkuð hrærir hjarta okkur og gleður jafn innilega. Og við biðjum Guð að blessa litla lífið sem við sannarlega bindum vonir við án þess að krefja það að sjálfsögðu um eitt eða neitt. En bæn okkar margra við slíkar aðstæður er að barnið fái að dafna vel og safna kröftum svo það megi svo fá að vaxa umvafið kærleika og náð Guðs undir faldi frelsarans svo það fái að verða hans í lengd og bráð.

Lífið er svo dýrmætt

Þakklætið tekur ósjálfrátt að streyma fram og þessi litlu líf taka að kóróna gleði okkar og tilgang. Guð blessi öll Þau litlu líf sem enn eiga eftir að líta dagsins ljós, foreldra þess, framtíð og framgang.

Svo kemur að því sem betur fer í lang flestum tilvikum að við fáum litla ósjálfbjarga lífið í hendur og hjarta okkar stækkar um leið til mikilla muna og þar myndast kærleikans pláss sem við vissum ekki einu sinni að væri til. Við verðum eitthvað svo meir, lítil og smá og svo auðmjúk í lotningu frammi fyrir lífinu, gjöfum Guðs og ávexti ástarinnar.

Lífið er svo dýrmætt og flestum svo óendanlega kært. Við biðjum kærleikans Guð að anda sínum góða anda á barnið og blessa það, vernda frá öllu illu og varðveita frá hvers konar háska og slysum. Að hann gefi því frið í hjarta, að það njóti umhyggju og veitist það sem til þarf til þess að verða farsælt í samskiptum, fái að njóta sín og vegna vel í lífinu. Að það fái að verða farvegur kærleika Guðs, ljóss og friðar, trúar og vonar og auðnist að bera þann ávöxt sem það er kallað til. Verði vitnisburður um ljós Guðs, anda og verk.

Lífið er kraftaverk. Guðs gjöf sem okkur er treyst fyrir að hlúa og sinna svo það fái rými til að þroskast og dafna og láta síðan muna um sig til góðra verka í þessari veröld. Lífsins andi er innblásinn af Guði. Stöndum því vörð um það, virðum það og verndum og stöndum með því.

Höldum utan um hvert annað. Samgleðjumst og fögnum yfir lífinu saman. Lífið er svo dýrmætt og okkur er ætlað að bera virðingu fyrir því. Standa saman í sátt og samlyndi og styðja hvert annað.

Ég á mér draum

Ég á mér draum um betra líf. Ég á mér draum um betri heim. Þar sem allir eru virtir, hver á sínum stað, í sinni stétt og stöðu. Þar sem allir hafa jöfn tækifæri og fá að mettast gæðum kærleikans og sannleikans. Þar sem allir fá að lifa í réttlæti og friði. Þar sem sjúkdómar, áhyggjur og sorgir eru ekki til. Og dauðinn aðeins upphaf að betri tíð.

Kærleikans Guð blessi líf okkar allt. Okkar ódauðlegu sálir.

Vissirðu að þú ert leikflétta í undri kærleika Guðs. Láttu muna um þig og njóttu þess.

Með friðar- og kærleikskveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 16:06
Húnabyggð ráðgerir að götur og gangstéttir verði sópaðar mánudag 13. maí næstkomandi. Biðlað er til íbúa að hreinsa bílastæði við hús sín og færa bíla og önnur farartæki af götum svo hægt sé að sópa allar götur og gangstéttir.
Glaðheimar
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Frá Skagaströnd. Mynd: Adolf H. Berndsen
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 10:39
Sveitarfélagið Skagaströnd hvetur til umhverfis- og plokkdags á Skagaströnd fimmtudaginn 9. maí. Fólk er hvatt til að plokka eða snyrta sitt nærumhverfi svo sem að sópa stéttir eða plön. Gámar verða sunna við Oddagötu 12 og á stígnum meðan við Bankastræti. Pylsur verða grillaðar við Bjarmanes klukkan 13 og eru allir velkomnir.
Pistlar | 07. maí 2024 - kl. 10:35
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Í augum Guðs ert þú ekki mistök. Ekki einhver lítils verður fánýtur einstaklingur eða eins og hvert annað óhapp, misheppnaður aðskotahlutur eða slys. Heldur eilífðar verðmæti. Þú ert eins og ljóð sem hann hefur ort og er að yrkja með þér frá degi til dags. Ástarljóð, óður til lífsins. Ljóð sem ætlað er að bera birtu og yl inn í aðstæður þeirra sem á vegi þínum verða. Já, allra þeirra sem þarf að uppörva og herða.
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá hópslysaæfingu. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 07. maí 2024 - kl. 06:23
Haldin verður hópslysaæfing í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra á laugardaginn. Æfingin fer fram ofan við Blönduós, á gatnamótum Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar. Ennisbraut verður því lokuð við Mýrarbraut og Þverárfjallsveg frá klukkan 11 og fram eftir degi. Reikna má með að bifreiðum sem ætlaðar eru til neyðaraksturs verði ekið með forgangsmerkjum á þessum tíma um Ennisbraut og Húnabraut að fjöldahjálparstöð og söfnunarsvæði slasaðra sem verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Laxveiði í Blöndu
Laxveiði í Blöndu
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 15:10
Laxveiðiárnar Blanda og Svartá hafa verið auglýstar til leigu frá og með sumrinu 2025. Einkahlutafélagið Starir er með vatnasvæðið á leigu í dag en núgildandi leigusamningur rennur út í haust. Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í laxveiðiánum frá og með sumrinu 2025 og til og með sumrinu 2029 með almennu útboði.
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Nýi búningsklefinn. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:55
Tekinn hefur verið í notkun einstaklingsbúningsklefi í Íþróttamiðstöðinni Hvammstanga og er hann staðsettur við hlið gufuklefans. Aðstaðan hentar þeim fjölbreytta hópi sem vill og þarf að hafa fataskipti í einrúmi, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að uppsetning búningsaðstöðunnar sé í samræmi við jafnréttisáætlun sveitarfélagsins en þar kemur fram að aðstaða í skólum og íþróttamiðstöð skuli henta þörfum ólíkra hópa.
Kálfshamarsvík
Kálfshamarsvík
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:48
Sveitarstjórn Skagabyggðar varð fyrir miklum vonbrigðum með nýlega úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið sendi inn tvær umsóknir, annars vegnar vegna hönnunar á Kálfshamarsvíkursvæðinu og hins vegar vegna verndun Kálfshamarsvíkur. Aðeins var úthlutað til hluta þess síðar nefnda og nam hún 3,6 milljónum en sótt var um rúmar 6,7 milljónir.
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Mynd: FB/Höskuldur Birkir Erlingsson
Fréttir | 06. maí 2024 - kl. 14:30
Höskuldur Birkir Erlingsson hefur frá árinu 2002 haldið utan um rjúpnatalningu við Blönduós. Ávallt hefur verið talið um mánaðamótin apríl/maí og karrar eingöngu taldir. Samkvæmt nýjustu talningu er rjúpum að fjölga en 91 rjúpa var talin að þessu sinni og er það 25% fjölgun frá fyrra ári. Frá árinu 2021 er fjölgunin 168%. Svæðið sem talið var á afmarkast af Svínvetningabraut og niður með Laxá á Ásum, að þjóðvegi 1 og svo niður að Blönduósi.
Mynd: Auðunn Blöndal
Mynd: Auðunn Blöndal
Pistlar | 06. maí 2024 - kl. 13:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Kornin atarna eiga að minna okkur á aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings kl. 15 á miðvikudaginn í Bóka- og héraðsskjalasafninu Blönduósi. En hér koma þó við sögu, Fjallaskáld og Þórunn sagnfræðingur og rithöfundur sem hefur nýlega skrifað bókina Bærinn brennur um bæjarbruna og morð á Illugastöðum 1828.
Tilkynningar | 06. maí 2024 - kl. 11:54
Frá Birni Þór og Söndru
Fimmtudaginn 9. maí milli klukkan 18:00 og 20:00 langar okkur á B&S Restaurant að bjóða ykkur upp á fiski hlaðborð og meðlæti (frítt en frjálsframlög eru þegin og renna þau til Blönduóskirkju vegna viðhalds og uppsetningu á salernum fyrir fatlaða). Ef þið hafið EKKI áhuga að þiggja þetta boð okkar vinsamlegast hafið samband í síma 898 4685 og afpantið.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:25
Kormákur Hvöt hóf leik í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í dag. Mótherjinn var Selfoss og fór leikurinn fram á Jáverk-vellinum á Selfossi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Staðan í hálfleik 0-0. Selfoss náði að skora eina mark leiksins í seinni hálfleik og var það eiginlega gegn gangi leiksins. Kormákur Hvöt fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 1-0 fyrir Selfoss.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:22
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 6 íbúða raðhúss við Flúðabakka á Blönduósi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar í haust. Um er að ræða fyrri áfanga að þessu verkefni en síðar er stefnt að því að byggja þriggja íbúða raðhús á sama reitnum.
Tilkynningar | 04. maí 2024 - kl. 17:05
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 13. maí klukkan 18:00 á Apotekarastofunni Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A.-Hún. sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 11:10
Opinn fundur um Prjónagleðina, sem fram fer helgina 7.-9. júní í sumar, verður haldinn í Ỏsbæ mánudaginn 6. maí klukkan 17. Í auglýsingu um fundinn segir að Húnabyggð taki að þessu sinni beinan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og leggi metnað sinn í að viðburðurinn verði líflegur og áhugaverður fyrir gesti og heimafólk.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið