15:52 |
09. apr. 2024 |
Tónleikar á Hvammstanga á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa
Tónleikar á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa verða haldnir laugardaginn 13. apríl í Hvammstangakirkju og hefjast klukkan 15. Boðið er upp á söng, hljóðfæraleik og ljóðaflutningur, sem m.a. nemendur tónlistaskóla Húnavatnssýslna taka þátt í. Einnig ætlar Karlakórinn Lóuþrælar að syngja. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn. |
15:43 |
09. apr. 2024 |
Húnaþing vestra - lifandi samfélag
Húnaþing vestra - lifandi samfélag fékk flest atkvæði í könnun á tillögum að slagorði fyrir sveitarfélagið og hefur byggðarráð samþykkt það fyrir sitt leyti. Í síðasta mánuði gátu íbúar valið á milli fimm tillagna að slagorði, sem öll áttu að lýsa kjarna samfélagsins og hægt væri að nota í kynningarskyni. Tillögurnar komu úr íbúakönnun sem framkvæmd var síðastliðið haust. Einnig var hægt að koma með nýjar tillögur. |
11:08 |
08. apr. 2024 |
FNV með sigur í Söngkeppni framhaldsskólanna
Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna 2024 á laugardaginn en hún keppti fyrir hönd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Keppnin var haldin í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi og tóku fulltrúar 25 framhaldsskóla þátt. Emelíana söng nýja íslenska útgáfu af laginu Never Enough úr kvikmyndinni The Greatest Showman. Emelíana er frá Sauðárkróki. |
21:48 |
07. apr. 2024 |
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu miðvikudaginn 10. apríl
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu verður haldinn miðvikudaginn 10. apríl kl 20:00 í húsnæði félagsins að Miðholti 1. |
17:28 |
07. apr. 2024 |
Kormákur Hvöt sigraði S.R. í Mjólkurbikarnum
Kormákur Hvöt mætti í Laugardalinn í Reykjavík í gær þegar liðið spilað gegn Skautafélagi Reykjavíkur í 64-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar. Gestgjafarnir leika í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla en Kormákur Hvöt í 2. deild eins og alþjóð veit. Eins og við mátti búast var Kormákur Hvöt sterkari aðilinn í leiknum og urðu lokatölur 2-4 fyrir gestina. |
18:46 |
06. apr. 2024 |
Íslenskur tangó í tali og tónum í Blönduóskirkju
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir söngkona og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmonikkuleikari gera íslenskum tangó skil í tali og tónum á tónleikum í Blönduóskirkju föstudaginn 19. apríl klukkan 18. Fyrstu tónleikar þeirra með sömu efnisskrá fóru fram í Hörpu síðastliðið haust og þóttu stórskemmtilegir. Ásta Soffía á ættir að rekja í Víðidalinn en amma hennar hét Soffía Jónsdóttir og var frá Nípukoti. |
18:04 |
05. apr. 2024 |
Samningur um byggingu nýs verknámshúss við FNV undirritaður
Í dag var undirritaður samningur um byggingu nýs verknámshúss við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Undirritunin fór fram í verknámshúsi Fjölbrautaskólans að viðstöddu margmenni þ.á.m. nemendum, starfsfólki skólans og fulltrúum úr atvinnulífinu. Samningurinn gerir ráð fyrir stækkun verknámshúss um allt að 1.400 fermetra. |
14:36 |
05. apr. 2024 |
Kynningarfundur á Hvammstanga um samþætta heimaþjónustu fyrir eldra fólk
Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga eru þátttakendur í þróunarverkefni sem gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Opinn kynningarfundur um verkefnið verður haldinn mánudaginn 15. apríl klukkan 16:15-17:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga og eru íbúar hvattir til að mæta. |
14:30 |
04. apr. 2024 |
Húnabyggð auglýsir eftir starfsfólki
Húnabyggð auglýsir þessa dagana fjölda starfa hjá sveitarfélaginu. Húnaskóli auglýsir eftir kennurum skólaárið 2024-2025 og Leikskóli Húnabyggðar auglýsir eftir deildarstjórum. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi auglýsir eftir starfsfólki til sumarstarfa og þá óskar sveitarfélagið eftir sumarstarfsmönnum 16 ára og eldri sem starfa munu undir stjórn Landsvirkjunar og vinna að ýmsum verkefnum innan sveitarfélagsins bæði í þéttbýli og dreifbýli. |
13:45 |
03. apr. 2024 |
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu 2024
Frá stjórnum deilda Stéttarfélagsins Samstöðu
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 8. og 9. apríl í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Almenn aðalfundarstörf fara fram hjá öllum deildum sem eru iðnaðarmannadeild, almenn deild, verslunarmannadeild og deild ríkis og sveitarfélaga. Aðalfundirnir verða haldnir sem hér segir: |
09:14 |
03. apr. 2024 |
Aco ráðinn aðstoðarþjálfari
Aco Pandurevic hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Kormáks Hvatar fyrir komandi keppnistímabil. Aco, sem áður hefur þjálfað Kormák Hvöt, leggur nú lokahönd á UEFA A þjálfaragráðu sína og kemur fullur af eldmóði og þekkingu inn í tímabilið í 2. deild, að því er segir á aðdáendasíðu Kormáks á Facebook. Ingvi Rafn Ingvarsson er aðalþjálfari Kormáks Hvatar. |
15:34 |
02. apr. 2024 |
Aðalsafnaðarfundur Blönduóskirkju þann 11. apríl
Tilkynning frá stjórn
Aðalsafnaðarfundur í Blönduóskirkju verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl n.k. og hefst kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. |
13:16 |
02. apr. 2024 |
Fjárfestahátíð Norðanáttar haldin í þriðja sinn
Fjárfestahátíð Norðanáttar var haldin á Siglufirði nýverið en þangað mættu helstu fjárfestar landsins til fundar við frumkvöðla sem vinna að verkefnum tengdum auðlinda-, orku- og umhverfismálum. Hátíðin er vettvangur fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem leita eftir fjármagni og eru tilbúnir að fá fjárfesta að borðinu. Þá er markmið hátíðarinnar einnig að draga fram tækifæri til uppbyggingar á atvinnuvegum og efla nýsköpun í kringum auðlindir landsbyggðanna, en þarna gefst gott tækifæri til þess að mynda tengingar og eiga fyrsta skrefið í átt að framtíðarsamvinnu. |
18:57 |
31. mars 2024 |
Gaukshreiðrið í Freyvangsleikhúsinu Eyjafirði
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Örfá sæti laus. Nýjar pantanir þurfa að berast fyrir næstkomandi mánudagskvöld. Góð þátttaka er í leikhúsferðina föstudaginn 5. apríl. Farið verður kl 15.00 frá Félagsheimilinu á Blönduósi. Þátttökugjald aðeins kr 11.000. Innifalið sæti í góðri rútu og aðgöngumiði að sýningunni. Borgist í rútunni.
Nýir þátttakendur tilkynnið á netfangið mao@centrum.is s. 898 5695 eða geitaskard@emax.is s. 897 4341. |
17:54 |
31. mars 2024 |
Páskahretið til vandræða
Líkt og spáð var hefur í dag verið vonskuveður á Norðurlandi og hafa björgunarsveitir úr Húnavatnssýslum og Skagafirði staðið í ströngu við að aðstoða ferðalanga yfir og niður af Vatnskarði og út Langadal. Mikil hálka er efst í Bólstaðarhlíðarbrekkunni og hafa bílar fokið þar til. Þá hafa bílstjórar í einhverjum tilfellum ekki treyst sér að keyra áfram þar sem skafrenningur og ofankoma blindar sýn. Björgunarfólk hefur því þurft að keyra suma bíla niður af Vatnskarði. |