14:51 |
21. nóv. 2022 |
Jólagjöfum safnað fyrir börn í Úkraínu
Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til að gleðja önnur börn, sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika, með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Á vef Skagastrandar er sagt frá því að í sameiginlegu verkefni þar hafi tekist að setja saman veglegar gjafir í 45 skókassa. |
11:12 |
21. nóv. 2022 |
Starfamessa á Norðurlandi vestra
Á morgun klukkan 10-17 verður haldin Starfamessa í húsakynnum Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Þar munu nemendur elstu bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra og nemendur FNV kynna sér náms- og starfsleiðir í iðn-, tækni-, verk- og raungreinum með áherslu á tækifæri sem eru í boði í landshlutanum. |
10:24 |
21. nóv. 2022 |
Gjafabréf í heimabyggð sem jólagjöf
Á vef Húnabyggðar er auglýst eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks Húnabyggðar. Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins, segir á vefnum. |
09:24 |
21. nóv. 2022 |
Vetrarferð Félags eldri borgara í Húnaþingi janúar 2023
Frá ferðanefndinni
Sunnudaginn 15. janúar verður farin dagsferð í Borgarnes. Á Sögulofti Landnámssetursins hlustum við kl. 16.00 á hinn eina sanna Gísla Einarsson. Eftir sýninguna verður borðað saman í Landnámssetrinu. Sérstakur sýningarhópmatseðill að hætti Gísla Einarssonar verður í boði. Það er mikilvægt að fá hugmynd um hugsanleg þátttakendum til að hafa hugmynd um fjölda miða sem þarf að panta.
|
14:14 |
20. nóv. 2022 |
Samstarfssamningur endurnýjaður
Selasetur Íslands og Hafrannsóknarstofnun hafa endurnýjað samstarfssamning um eflingu rannsókna á selum við Ísland á starfsstöðinni á Hvammstanga og þá sérstaklega á vöktun á stofnstærð útsels og landsels. Þá kveður samningurinn á um gagnasöfnun og rannsóknir sem stuðla að bættri ráðgjöf í samræmi við stjórnunarmarkmið stjórnvalda. |
12:29 |
20. nóv. 2022 |
USAH fagnaði 110 ára afmæli
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga fagnaði 110 ára afmæli í síðustu viku með glæsilegri veislu á Blönduósi. Aðildarfélögum USAH, fulltrúum sveitarfélaga, Ungmennafélagi Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var boðið til afmæliskvöldverðar á B&S Restaurant. Á meðal gesta var Gunnar Þór Gestsson, varaformaður UMFÍ. |
07:28 |
20. nóv. 2022 |
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn í dag. Í ár verður sérstök áhersla lögð á öryggi óvarinna vegfarenda. Minningarathafnir eru hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 14, eftir þriggja ára hlé vegna faraldursins. Þar verða flutt ávörp og einnig verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn. Minningarathafnir víðs vegar um landið eru haldnar á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. |
13:59 |
19. nóv. 2022 |
Samtal um Holtavörðuheiðarlínu 3
Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 3 milli Holtavörðuheiðar og Blöndu. Á vef Landsnets segir að lagning línunnar sé mikilvægur hlekkur í nýrri kynslóð byggðalína og að meginmarkmiðið sé að auka afhendingaröryggi og afhendingargetu á landinu og tryggja að flutningskerfið standi ekki í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og eðlilegri þróun byggða. |
08:48 |
19. nóv. 2022 |
Hrútafundir framundan
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og búnaðarsamböndin halda sameiginlega hrútafundi á næstu vikum en þeir hafa ekki verið haldnir síðastliðin tvö ár vegna farsóttarinnar. Markmið fundanna er að kynna hrútakost sæðingastöðvanna og ræða um ræktunarstarfið. Fyrstu fundirnir hefjast 21. nóvember og verða þrír fundir haldnir á svæði Búnaðarsambands Húnaþings og Standa. |
13:29 |
18. nóv. 2022 |
Konur breyttu búháttum
Fyrirlestur í Heimilisiðnaðarsafninu
Laugardaginn 19. nóvember klukkan 15:00 mun Bjarni Guðmundsson, prófessor emeratus, á Hvanneyri, flytja fyrirlestur sem hann byggir á samnefndri bók sinni Konur breyttu búháttum -saga mjólkurskólans á Hvanneyri og Hvítárvöllum. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur og kaffi og spjall að fyrirlestri loknum. |
09:54 |
18. nóv. 2022 |
Nýtt Hvammshlíðardagatal komið út
Karólína Elísabetardóttir í Hvammshlíð í Skagabyggð hefur gefið út dagatal fyrir 2023. Þetta er fimmta dagatalaútgáfa Karólínu og sem fyrr inniheldur dagatalið fróðleik sem snýst í kringum búskapinn í Hvammshlíð og sveitalífið fyrr og nú. Hún vakti athygli árið 2018 þegar hún hóf sölu á dagatölum til að fjármagna kaup á dráttarvél fyrir búskapinn. |
09:29 |
18. nóv. 2022 |
Hugmyndafundir vegna deiliskipulags í gamla bæjarhluta Blönduóss
Sveitarfélagið Húnabyggð auglýsir á vef sínum tvo opna hugmyndafundi sem haldnir verða í næstu viku. Á þeim verður safnað saman hugmyndum fólks um uppbyggingu gamla bæjarhluta Blönduóss. Fyrri fundurinn verður haldinn 22. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19 og seinni fundurinn 23. nóvember í Mengi á Óðinsgötu 2 í Reykjavík klukkan 19. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta. |
14:27 |
17. nóv. 2022 |
Húnvetnsk hrossaræktarbú tilnefnd til verðlauna
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins segir að valið hafi staðið á milli 36 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru nokkur bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 15 í ár. Þar á meðal eru nokkur húnvetnsk hrossaræktunarbú. |
14:11 |
17. nóv. 2022 |
Enn fækkar sláturlömbum
Sláturlömbum heldur áfram að fækka hér á landi og samkvæmt nýjum sláturtölum sem birtar eru í Bændablaðinu nemur fækkunin milli ára um 20 þúsund lömbum. Hjá SAH afurðum fækkar sláturlömbum um 5.565 milli ára, heildarfjöldinn fer úr 73.875 í 68.310. Er þetta næst mesta fækkun hjá sláturhúsi á landinu en mest fækkaði hjá Sláturfélagi Suðurlands eða um tæplega 6 þúsund lömb. |
09:12 |
17. nóv. 2022 |
Bjarmanes - Menningarmiðja Norðurlands
Frá Evu og Erlu
Næst komandi föstudag opnar Bjarmanes menningar-og samveruhús á Hólanesvegi, Skagaströnd. Að stofnun Menningarmiðju Norðurlands sem rekur Bjarmanes: menningar- og samveruhús standa vinkonurnar G. Eva Guðbjartsdóttir og Erla María Lárusdóttir sem búsettar eru á Skagaströnd. Þeim fannst vanta vettvang þar sem hægt væri að ýta undir menningu, listir og samveru á Skagaströnd og ákváðu að taka málin í eigin hendur. |