23:12 |
08. maí 2015 |
Organistapistill - Sól af hafi rís
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Straumur tímans hremmir okkur segir skáldið úr Langadal og pistilhöfundur hefur einmitt haft svipuð kynni af þessum lítt sýnilega fararstjóra. Seinni vetri hans við orgelið í Blönduóskirkju er að ljúka og hann hefur notið þess að spila á glæsihljóðfæri í hljómmiklum sal, kynnast úrvalsfólki, sumu í kórnum, öðru í heitu pottunum hjá Róbert eða í strætóbið um hádegi í Skálanum – N1. |
10:28 |
02. maí 2015 |
1. maí 2015 á Blönduósi
Ræða Guðmundar Gunnarssonar fyrrv. form. Rafiðnaðarsambandsins
Ágætu félagar, nú ég get vafalaust sagt frændur og frænkur við einhvern hluta salarins. Föðurætt mín er frá Auðunarstöðum í Víðidalnum. Ég var þar í sveit í 10 sumur og eftir það eyddi ég oft hluta af orlofi mínu í það að stinga út úr fjárhúsunum hjá Bjössa og vinna við heyskapinn. Fyrir okkur borgarbörnin var það mikill lærdómur að fá að vera í sveit. Maður lærði að vinna og og einnig að skilja náttúruna. |
11:46 |
20. apr. 2015 |
Makrílgjafakvóti fyrir milljarða
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Ríkisstjórnin hefur lagt fram lagafrumvarp um að lögfesta kvótasetningu á makríl, en hann er ný tegund í íslenskri lögsögu, og einnig verða heimiluð frjáls viðskipti með hann innan sjávarútvegsgreinarinnar.
Þessi gjörningur þýðir gjafakvóta fyrir tugi milljarða til aðila í greininni í boði stjórnvalda á sama tíma og launafólki eru skammtaðar launahækkanir úr hnefa í nafni stöðugleika!
|
20:36 |
19. apr. 2015 |
Sóknaráætlun – hvað er að frétta?
Eftir Stefán Haraldsson
Þann 22. júní næstkomandi skulu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa lokið gerð sóknaráætlunar landshlutans fyrir árin 2015-2019 samkvæmt samningi sem var undirritaður 10. febrúar síðastliðinn. Áætlunin mun marka stefnu landshlutans í menningarmálum, nýsköpun, atvinnuþróun, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilegri þróun svæðisins. |
20:32 |
19. apr. 2015 |
Menntun í heimabyggð, forréttindi eða óþarfi?
Eftir Ásdísi Ýr Arnardóttur umsjónarmann Dreifnáms í A-Hún.
Að frumkvæði og kröfu heimamanna hófst árið 2012 formlegur undirbúningur að dreifnámi á Blönduósi í samstarfi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Félags- og skólaþjónustu A-Hún bs. Gengið var vasklega til verka og hófst kennsla strax um haustið. Fyrirkomulag kennslu er með þeim hætti að kennt er í rauntíma í með myndfundabúnaði, en kennarinn er að öllu jöfnu staddur á Sauðárkróki. |
10:08 |
16. apr. 2015 |
Organistapistill - Að eiga saman söng í hjarta
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Þeim fækkar ört vetrardögunum og sjálfum vetrinum lýkur miðvikudaginn 22. apríl og þá ætla félagar í gamla kórnum okkar, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps að fagna 90 ára afmæli kórsins, sem hélt fyrstu söngskemmtun sína fyrsta sunnudag í sumri 1925 eins og lesa má um í riti kórsins, Tónar í tómstundum eða Stikli 1 þar sem tínd eru fram gögn um kórinn. |
07:08 |
14. apr. 2015 |
Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum og Kúgun kvenna
Eftir Þór Jakobsson veðurfræðing
Sigurður Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal í Húnavatnssýslu féll frá ungur maður, drukknaði af skipi á 24. aldursári. Hann var mörgum harmdauði og eðlilega sár missir foreldrum sínum og fjölskyldu, vinum og vandamönnum.
Það er sjaldgæft að menn sem hafa lifað jafnstutta ævi og Sigurður hafi unnið svo eftirminnileg andleg afrek að í minnum verði höfð löngu eftir þeirra dag.
|
14:03 |
01. apr. 2015 |
Heilsuvikan
Frá skipuleggjendum heilsuvikunnar
Við viljum þakka fyrir frábæra þátttöku í heilsuviku og heilsufarsmælingum dagana 16. - 20. mars. Nú er um að gera að halda áfram að hugsa vel um heilsuna og nýta sér öll þau tækifæri sem standa til boða hér á svæðinu. Við viljum nota tækifærið til að kynna nýlegt úrræði fyrir þá sem hafa ekki hreyft sig í langan tíma sem eru hreyfiseðlar. |
09:44 |
01. apr. 2015 |
Afmæliskveðja
Kveðja frá strákunum í Átak
Okkar vinnuveitandi og ástkæri krúttkall á afmæli í dag, vildum við því senda honum fallega afmæliskveðju í tilefni dagsins. Hann Jónas okkar er besti vinnuveitandi sem hægt er að hugsa sér og jafnframt yndislegur maður í alla staði. Líf okkar er ávallt skemmtilegra þegar Nasi lætur sjá sig það geislar af honum gleði og þegar hann brosir þá getur maður ekki annað en brosað líka svo smitandi er bros hans. |
19:39 |
29. mars 2015 |
Organistapistill - Kossar hríðarélja
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Milli áfanga með ýmsum nöfnum, skiptast ævi- og starfsdagarnir, við reynum að sinna amstri og úrlausnarefnum þeim sem Hr. Tími leggur á borðin morgun hvern. Að kvöldi sést hvað áunnist hefur en stundum þarf mörg ár til að sjá árangur skila sér. Stundum duga ekki áratugir. |
15:55 |
19. mars 2015 |
Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir að hefjast
Eftir Ásgerði Pálsdóttur
Á morgun verða atkvæðaseðlar um heimild til verkfallsboðunar 16 aðildarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands settir í póst. Viðræðum Starfsgreinasambands Íslands sem Stéttarfélagið Samstaða er aðili að var slitið þann 10. mars en mikið skildi þá á milli samningsaðila og ekkert þokaðist í samningsátt.
|
14:42 |
17. mars 2015 |
Organistapistill - Lindin tær og ljúfur blær
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Hann er svartur, svipillur, samt er partur heiður, lítið bjartur landaustur, ljótt er margt í útnorður. Hreggviður á Kaldrana lýsir þannig veðurhorfunum einhvern tíma um 1800 en þá var hann þrítugur sjómaður út á Skaga þar sem bú hans var um þessar mundir. Ótíð og kuldabálkar hafa lengi þjarmað að Frónbúum, dregið úr okkur hug, drepið í dróma framtíðaráætlanir og þrengt að kosti fátækra.
|
21:53 |
05. mars 2015 |
Úr vörn í sókn
Eftir Guðmund St. Ragnarsson
Um daginn horfði ég á mjög góðan þátt Kristjáns Más Gunnarssonar á Stöð 2 í þáttaröð hans ,,Um land allt”. Þátturinn fjallaði um atvinnu- og mannlíf hjá ,,frændum” Húnvetninga í Húnaþingi vestra. Þátturinn bar yfirskriftina ,,Úr vörn í sókn á Hvammstanga”.
Mikill bjartsýni einkennir forsvarsmenn sveitarfélagsins og fyrirtækja á svæðinu og kraftur er í félagslífinu á Hvammstanga.
|
13:12 |
24. feb. 2015 |
Sátt við hverja?
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Nýjasta útspil sjávarútvegsráðherra, að hann treysti sér ekki til að leggja fram nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp sökum ósamkomulags á milli stjórnarflokkanna, hefur vakið mikla athygli þjóðarinnar og kristallast þar sá mikli ágreiningur sem ríkir um eignarhald og ráðstöfunarrétt á þessari sameiginlegu sjávarauðlind landsmanna. |
09:26 |
20. feb. 2015 |
Organistapistill - Á það hiklaus treysti
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Jæja Húnvetningar góðir, okkur sem sitjum hér uppi í Hnitbjörgum sýnist að nú sé allt gerast á einni og sömu helginni, þeirri sem stundum er kennd við þorraþræl, daginn sem lötrar á eftir öllum hinu þorradögunum, en það er laugardagurinn en svo kemur sjálfur konudagur, góa hefst á sunnudegi, þá verður svannamorgunn, snótaraftan eða fljóðadagur. |