16:24 |
26. okt. 2014 |
Skjaldborgin rís eftir langa bið
Innan skamms verða verðtryggð húsnæðislán heimilanna leiðrétt. Um jafnræðisaðgerð er að ræða sem mun koma flestum íslenskum heimilum til góða. Loksins fá heimilin að njóta einhverrar sanngirni og réttlætis. Húsnæðismálin eru einnig í brennidepli en húsnæðismálaráðherra mun leggja fram fjögur frumvörp þessa efnis á yfirstandandi þingi. |
18:52 |
16. okt. 2014 |
Organistapistill - Sjal í mildum faðmi
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Kirkjukórsmenn hittast öll miðvikudagskvöld til að æfa sálma og stundum rifja þeir upp sögur af Björgu í Lóni og sýslunga hennar Sólveigu organista Benediktsdóttur sem fékk hana hingað vestur til Kvennaskólans eða kórsins, en þessu fylgir að kirkjukórinn missir alltaf af Kiljunni í sjónvarpinu þetta sama kvöld. |
18:48 |
16. okt. 2014 |
Ný neysluviðmið, já takk
Eftir Elsu Láru Arnardóttur
Fyrsta þingmannamál Framsóknarflokksins á þessum þingvetri, var að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis, að fela félags – og húsnæðismálaráðherra, að hefja útreikning nýrra neysluviðmiða fyrir íslensk heimili. Mælt var fyrir þingmannamálinu í þingsal þann 25. september s.l. og nú hefur málinu verið vísað til Velferðarnefndar þingsins. |
20:31 |
15. okt. 2014 |
Frjáls eins og fuglinn
Eftir Magnús Ólafsson
Að undanförnu hafa margir spurt mig hvernig ég hafi það og hvort heilsan sé að koma. Því þykir mér rétt að biðja Húnahornið fyrir þessar línur til þeirra sem vilja lesa. Ég get tekist á við flest þau verk, sem ég gat sinnt fyrir ári. Verð ekkert tiltakanlega mæðinn við venjuleg verk eða á gönguferðum.
|
22:47 |
04. okt. 2014 |
Ráðalaus Ríkisstjórn
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Allt virðist ætla að verða þessari ríkisstjórn að ógæfu. Það er eins og að hún sé ekkert í tengslum við almenning í landinu og ákvarðanatökur hennar lýsa skilningsleysi og skeytingarleysi um kjör þess hluta þjóðarinnar sem þarf að hafa sig allan við til að ná endum saman. |
20:24 |
29. sep. 2014 |
Hér var ég skorin
Eftir Jón Bjarnason
Hann Páll Kolka langafi virðist hafa skorið upp aðra hverja manneskju hér á Blönduósi sagði dóttir mín Katrín Kolka, þegar hún kom heim eftir fyrsta daginn í vinnu á Héraðshæli Húnvetninga á Blönduósi fyrir nokkrum árum.
Starfsþjálfunin þar var hluti af hjúkrunarnámi Katrínar. Það þyrptist að mér allt eldra fólkið til að sýna mér stolt örin, þar sem Páll skar, sagði Katrín með aðdáun.
|
15:04 |
18. sep. 2014 |
Organistapistill
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Þegar unglingurinn hafði matast, reis hann á fætur til að blása rjóður í þykka héluna á glugganum. Faðir hans var nýgenginn út að gefa fénu dagsgjöfina áður en presturinn og kirkjufólkið kæmi. Móðir hans kom framan úr eldhúsinu með kolafötu til að bæta í ofninn í stofunni. Hann var ekki farinn að sjá út þegar hún fór að bera matarílátin fram af borðinu. |
18:11 |
14. sep. 2014 |
Ráðstefna um stuttrófukyn sauðfjár
Eftir Jóhönnu E. Pálmadóttur
Dagana 4.-8. september síðastliðinn var haldin ráðstefna í Félagsheimilinu á Blönduósi um stuttrófukyn sauðfjár í löndum sem liggja að Norður Atlandshafi og var hún opin öllum. Ráðstefnan var fjölmenn en allt að 100 manns sóttu hana frá 13 löndum. Þar á meðal frá Ástralíu, Suður Afríku, Kanada, Þýskalandi og Bandaríkjunum. |
19:37 |
02. sep. 2014 |
Septembernöldur
Nöldri snýr aftur eftir sumarfrí
Nú er að koma á daginn að nöldrið mitt um útbreiðslu skógarkerfils í bænum hefur átt fyllilega rétt á sér. Ekkert hefur verið gert í því að hamla vöxt þessarar skaðræðisplöntu og nú í sumar kemur rækilega í ljós að hann bókstaflega æðir um bæinn. |
14:17 |
26. ág. 2014 |
Organistapistill
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Í síðasta pistli var rifjuð upp ferðavísa Ragnars heitins Böðvarssonar frá vorinu 2012 en hér kemur seinni vísa Ragnars. Kóparnir á skerjunum skemmta sér við
skvamp í glaðri öldu við lábarða steinana
Féð er dreift um heiðanna sólvermda svið
Söngfugl tekur undir við lækjarins nið.
|
18:22 |
07. ág. 2014 |
Atvinnuuppbygging í Húnaþingi?
Eftir Guðmund St. Ragnarsson
Fimmtudaginn 31. júlí var í Morgunblaðinu lítil forsíðufrétt um að Landsvirkjun hyggist reisa í nánustu framtíð 3 virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar. Ég fletti á blaðsíðu 20 þar sem tekin voru viðtöl við forsvarsmann Landsvirkjunar og stöðvarstjóra stöðvarstjóra Blönduvirkjunar og fjallað ítarlega um málið. |
10:20 |
25. júl. 2014 |
Opið bréf til Nöldra
Eftir Jónas á Ljóninu
Kæri nöldri það gladdi mig þegar þú komst útúr moldarkofanum og sást sýslumannsbrekkuna ef þú hefðir farið hríng í kríngum kofann hefðirðu séð Blöndubyggðina sem er slæm auglýsing fyrir fuglaskoðunar hús sem er eins og yfirgefið vegna umhverfisins og ástands götunnar. |
22:14 |
19. jún. 2014 |
Að grípa tækifærið
Eftir Guðríði B. Helgadóttur
Ekki þarf að fletta lengi blöðum sögunnar til að sjá hversu giftusamlega þessi staðreynd hefur tekist fyrir framþróun og efnahag lands og þjóðar.
Þess vegna er ekki að ástæðulausu að minna á það nú, og taka undir með skáldinu:
Tækifærið gríptu greitt
giftu mun það skapa.
Járnið skaltu hamra heitt.
Að hika er sama og tapa.
|
10:09 |
16. jún. 2014 |
Afhverju er mér ekki nákvæmlega sama?
Eftir Gunnar Rúnar Kristjánsson
Nú erum við hjónin búin að selja jörðina innan fjölskyldunnar. Við komum heim” um jóla og páska og oftast um Húnavöku. Við hittum fólk og öllum finnst gaman. Þau sem keyptu jörðina eignast börn eins og gengur og gerist og þau eru frjósöm. Þrjú börn á 4 árum, geri aðrir betur. |
13:22 |
13. jún. 2014 |
Á mér að vera sama?
Eftir Gunnar Rúnar Kristjánsson
Íbúum í Húnavatnshreppi gafst tækifæri á að segja sína meiningu um sameiningu sveitarfélaga í sveitarstjórnarkosningum. Það sama fengu kjósendur í Skagabyggð. Öllum er nú ljóst að þessu var hafnað. Engin umræða um þetta mál átti sér stað. Listarnir í Húnavatnshreppi melduðu pass og ætluðu að hlíta niðurstöðum skoðunarkönnunarinnar. |