11:48 |
08. feb. 2015 |
Árið 2015 hjá Skotfélaginu Markviss
Frá stjórn Skotfélagsins Markviss
Árið 2015 verður viðburðaríkt hjá Skotfélaginu Markviss og langar okkur í stjórn félagsins til að fara yfir það helsta sem framundan er hjá okkur. Stefnt er að því að almennar æfingar verði með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. á miðvikudagskvöldum frá 1. júní til 1. september. Hátt í 30% aukning varð í aðsókn á þessar æfingar á síðasta ári frá því árinu áður og vonum við að sú ánægjulega þróun haldi áfram. |
11:25 |
05. feb. 2015 |
Hvers virði er Ísland?
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Náttúrupassi hefur mikið verið í umræðunni undanfarið og frumvarp þar að lútandi hefur nú litið dagsins ljós. Það eru vonandi allir sammála um að stórauknu fjármagni verður að verja til uppbygginga innviða ferðamannastaða annars stefnir allt í óefni og náttúra landsins hlýtur mikinn skaða af. |
11:59 |
03. feb. 2015 |
Vegferðin til réttlátara samfélags
Eftir Ásgerði Pálsdóttur
Sextán aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands (SGS) afhentu Samtökum atvinnulífsins (SA) kröfur sínar þann 26. janúar síðastliðinn. Ein meginkrafan er að miða krónutöluhækkanir á laun við að lægsti taxti verði 300 þúsund á mánuði innan þriggja ára. Atvinnurekendur vildu ekki ræða kröfurnar en kölluðu til alþjóðar að þær þýddu 40-50% hækkun sem færu upp allan skalann og stöðugleikinn færi veg allrar veraldar. |
20:03 |
19. jan. 2015 |
Áramótakveðja til starfsfólks Blönduskóla
Eftir Sigurlaugu Gísladóttur
Nú er rétt rúmt ár síðan við fjölskyldan fluttum hingað á Blönduós og má segja að flestum hafi fundist við snargalin að gera slíkt. Og það má vel vera að við séum það :).
En sú snargalna ákvörðun hefur heldur betur skilað sér fyrir okkur og yngsta son okkar sem hefur blómstrað í skólanum ykkar/okkar, ekki bara námslega heldur líka það að líða vel, því það er hreint ekki sjálfgefið.
|
10:55 |
15. jan. 2015 |
Þorpin okkar!
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Það eiga margir rætur sínar að rekja til sjávarþorpanna vítt og breitt um landið, þorpanna sem kúra undir fjallshlíðum eða eru við víkur og voga. Þau hafa orðið til og byggst upp vegna hagstæðrar legu sinnar við sjó og góðs aðgengis að gjöfulum fiskimiðum og í framhaldinu hefur byggst upp góð hafnaraðstaða til að sinna sjávarútveginum ásamt vöru- og þjónustuviðskiptum. |
20:59 |
14. jan. 2015 |
Ljósleiðari um allt land
Eftir Ásmund Einar Daðason
Í nýársávarpi forsætisráðherra var sagt frá því að á næsta ári ætti að hefja framkvæmdir við ljósleiðaravæðingu alls landsins en það var eitt af þeim stefnumálum sem Framsóknarflokkurinn lagði áherslu á í síðustu kosningum. Ljósleiðaravæðing alls landsins verður eitt stærsta framfaramál sem ráðist hefur verið í þegar kemur að styrkingu á innviðum og byggðum landsins. |
21:55 |
05. jan. 2015 |
Áramótahugleiðing
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Árið 2014 var gjöfult ár fyrir Ísland frá náttúrunnar hendi, bæði til sjávar og sveita, og einnig streymdu ferðamenn til landsins sem aldrei fyrr. Ef við sætum ekki uppi með þessa guðsvoluðu ríkisstjórn þá værum við sem þjóð í góðum málum og værum að komast út úr kreppunni, byggja upp innviði samfélagsins og auka jöfnuð í landinu. |
12:57 |
03. jan. 2015 |
Organistapistill - Vöktu þeir Jónas um nótt!
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Staðnar á vörum rímið segir Guðríður B. Helgadóttir til að lýsa konungsveldi vetrarins. Hún átti æskuár sín í Núpsöxl á Laxárdal og þar á dalnum var vetrarríki mikið eins og fleiri Laxdælingar geta vitnað um. Guðríður bjó um áratugi með fjölskyldu sinni í Austurhlíð en dvelur nú á elliheimili á Sauðárkróki. |
12:18 |
26. des. 2014 |
Organistapistill - Við hálfnað lag
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Jólin lifa fram á þrettánda jóladag. Áttidagur jóla er annað nafn á nýársdegi – eitt sinn var tíska í háskólanum, og kannski enn – að efna til áttadagsgleði á nýársnótt svo er gamlársdagur er mikill veislu- og skemmtanadagur meðal landsmanna. En næsta guðsþjónusta í Blönduóskirkju verður kl. 14 á gamlársdag. Þá stígur Húnsstaðamaður og góður húmanisti í stólinn, Jón Benedikt Björnsson að nafni. |
14:58 |
24. des. 2014 |
Þá var flutningur ríkisstofnunar talinn góður og gildur
Eftir Einar K. Guðfinnsson
Það er eftirtektarvert hversu hugmyndum um staðsetningu höfuðstöðva ríkisstofnana á landsbyggðinni er tekið með miklum svigurmælum og stóryrðum. Samt sjá það allir að það er ekkert náttúrulögmál að slík starfsemi þurfi öll að vera innan lögsögu höfuðborgarinnar. Fjarri því. Fjölmargar ríkisstofnanir geta þjónað hlutverki sínu jafn vel fyrir landið í heild, þó þær séu staðsettar á landsbyggðinni. |
17:59 |
17. des. 2014 |
Organistapistill - Að gefa og þiggja gjafir
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á jólunum fæddist Jesús í jötu hann lagður var. Gjafir þar honum gáfu gráhærðir vitringar, segir Guðmund Kristjánsson frá Steinnýjarstöðum í Jólaljóðum sínum. Ljóðið hans birtist ásamt ljóðum og vísum 99 annarra skálda og hagyrðinga í ljóðasafninu Íslensk alþýðuskáld. Jólaföstu- og jólatími verður löngum tími ljóða og annarra skáldamála.
|
15:54 |
08. des. 2014 |
Ég skora á innanríkisráðherra
Eftir Elsu Láru Arnardóttur
Eins og flestum er kunnugt hefur EFTA dómstóllinn birt ráðgefandi álit sitt vegna dómsmáls er varðar lögmæti á útfærslu verðtryggingarinnar á verðtryggðum lánum. Úrskurður EFTA varðar hvort heimilt sé eða ekki að miða við 0% verðbólgu á greiðsluáætlunum. EFTA dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri heimilt samkvæmt neytendalánatilskipuninni að miða útreikning verðtryggðra lána við 0%, ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi væri ekki 0%. |
18:54 |
05. des. 2014 |
Sveitarfélagið Skagaströnd /Höfðahreppur 75 ára
Eftir Magnús B. Jónsson
Á árinu 2014 eru 75 ár frá skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjú sveitarfélög 1939 og upphaf Höfðahrepps sem í dag heitir Sveitarfélagið Skagaströnd. Í tilefni af þessum tímamótum bauð sveitarfélagið til afmælisveislu í Fellsborg 1. desember sl. Um 180 manns komu og neyttu veislufanga sem kvenfélagið Eining sá um að framreiða. |
21:10 |
03. des. 2014 |
Sáttin rofin!
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur
Stundum trúir maður ekki einhverju fyrr en maður tekur á því. Það átti við um mig sem er 1. varaformaður atvinnuveganefndar en nefndin hefur verið með til umfjöllunar þingsályktunartillögu um vernd og nýtingu landsvæða ,tillögu verkefnastjórnar 3.áfanga rammaáætlunar um að færa Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingarflokk. |
16:23 |
28. okt. 2014 |
Organistapistill – Að taka hrúta
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Einlægt er nokkuð um dýrðir ef vel er að gáð. Í sjónvarpsstöðinni N4 birtust í gærkveldi tónar frá söngæfingu í Akureyrarkirkju, kammerkór frá Bretlandi í Evrópuferð en þeir áttu eftir að koma til Íslands. Létu af því verða og því getum við hlustað á söng þeirra í Blönduóskirkju á miðvikudag klukkan 17.
|