Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:35 0 0°C
Laxárdalsh. 22:35 0 0°C
Vatnsskarð 22:35 0 0°C
Þverárfjall 22:35 0 0°C
Kjalarnes 22:35 0 0°C
Hafnarfjall 22:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 76-90 91-105 af 109 Næstu 106-109
KlukkanDagsetningFrétt
22:22 05. jún. 2020   Styrkir úr Loftlagssjóði til Skagastrandar og Hvammstanga
Nes listamiðstöð á Skagaströnd og Selasetur Íslands á Hvammstanga fengu nýlega styrki úr Loftlagssjóði. Þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðum en umsóknarfrestur var þann 30. janúar síðastliðinn. Sjóðurinn heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra. Hlutverk hans er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.
22:12 05. jún. 2020   Sjómannadagsmessa í Hólaneskirkju
Frá Skagastrandarprestakalli
Sjómannadagsmessa verður haldin Hólaneskirkju sunnudaginn 7. júní klukkan 11. Steindór Runiberg Haraldsson er ræðumaður dagsins. Hinn rómaði Sjómannadagskór Skagastrandar syngur við undirleik hljómsveitar hússins og Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista og kórstjóra. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar í messunni.
15:02 05. jún. 2020   Ný stjórn Markaðsstofu Norðurlands
Ný stjórn Markaðsstofu Norðurlands var kosin á aðalfundi, sem haldinn var 26. maí síðastliðinn. Hana skipa þau Viggó Jónsson frá Drangeyjarferðum, sem er formaður stjórnar, Örn Arnarson, eigandi Hótel Laugarbakka, Heba Finnsdóttir, eigandi veitingastaðanna Bryggjunnar og Striksins, Sigrún Hulda Sigmundsdóttir, hótelstjóri Icelandair hótel Akureyri og Edda Hrund Guðmundsdóttir hótelstjóri Hótel Laxár. Varamenn eru Þórdís Bjarnadóttir frá Höldi og Tómas Árdal frá Arctic Hotels.
14:07 05. jún. 2020   Hlaupbangsar með fíkniefnum í umferð
Lögreglunni Norðurlandi vestra hafa borist áreiðanlegar upplýsingar þess efnis að hlaupbangsar eða hlaupkubbar sem innihalda fíkniefni séu í umferð á svæðinu. Í tilkynningu segir að þarna sé um grafalvarlegt mál að ræða en eins og nýleg dæmi sanni sé þarna um að ræða mjög hættuleg efni. Lögregla lítur málið alvarlegum augum og biður fólk um að vera á varðbergi gagnvart þessum ófögnuði. Ef einhverjir kunna að búa yfir upplýsingum um málið þá er skorað á þá að hafa samband við lögregluna.
11:50 05. jún. 2020   Riðuaðgerðir leiddu til uppgötvunar fornleifa
Fornt og áður óþekkt bæjarstæði hefur uppgötvast vegna riðuhreinsunar Matvælastofnunar á bænum Grófargili í nágrenni Varmahlíðar. Þar fannst öskuhaugur og í honum hnífsblað, hnífsskaft, ýmsir járngripir, dýrabein, snældusnúður og grjót í eldstæði. Fornminjarnar eru frá því vel fyrir árið 980 af gjóskulögum að dæma.
10:46 05. jún. 2020   Minningarskilti um Bangsa afhjúpað á Hvammstanga á sjómannadaginn
Minningarskilti um Björn Þóri Sigurðsson, Bangsa eins og hann var gjarnan nefndir, verður afhjúpað á Hvammstanga á sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní næstkomandi. Athöfnin hefst með messu á Bangsatúni klukkan 13 þar sem sr. Magnús Magnússon, sóknarprestur á Hvammstanga, þjónar og prédikar. Kirkjukór Hvammstanga syngur undir stjórn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur organista. Að lokinni messu verður minningarskiltið afhjúpað og síðan verður boðið upp á veitingar undir bláhimni.
21:24 04. jún. 2020   Heimilisiðnaðarsafnið í sumarbúning
Frá Heimilisiðnaðarsafninu
Við sumaropnun Heimilisiðnaðarsafnsins er ævinlega boðið upp á nýja sérsýningu. Í þetta sinn eru það Arkir bókverkahópur, sem telur 11 íslenskar listakonur sem standa að sýningunni Spor í safninu. Nokkrar erlendar listakonur eiga einnig verk á sýningunni en þær eiga það sameiginlegt að hafa dvalið á Textílsetrinu/Textílmiðstöðinni í Kvennaskólanum á Blönduósi.
11:24 04. jún. 2020   Vörukarfan hækkað um 15,6% í Kjörbúðinni
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 2,3-15,6% á einu ári í átta verslunarkeðjum. Vörukarfan á að endurspegla almenn matarinnkaup meðal heimilis. Í sex verslunarkeðjum af átta hækkar vörukarfan um yfir 5%. Mest hækkaði vörukarfan í Kjörbúðinni eða um 15,6% og næst mest í Krambúðinni um 13,6%. Minnst hækkaði verðið í Tíu ellefu á tímabilinu, 2,3% og næst minnst í Iceland um 3,4%.
09:38 04. jún. 2020   Stuðningur við tæknilega lausn til hljóðleiðsagnar á söfnum og setrum
Nýverið var undirritaður samningur milli Sýndarveruleika ehf. og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um stuðning við þróun stafrænnar leiðsagnar fyrir söfn og setur. Verkefnið gengur út á að búa til tæknilausn til hljóðleiðsagnar á söfnum og setrum sem notast við viðbótarveruleikatækni. Notaðir verða svokallaðar QR kóðar sem komið er fyrir á ákveðnum stöðum inni í sýningarrými.
09:21 04. jún. 2020   Hvöt stofnar körfuknattleiksdeild
Í vetur fóru fram reglulegar körfuboltaæfingar fyrir krakka á Blönduósi en það hefur ekki verið í boði í langan tíma. Æfingatímabilinu lauk í gær þegar krökkunum var boðið til Sauðárkróks þar sem þau hittu þjálfara og leikmenn beggja meistaraflokksliða Tindastóls. Í ljósi mikils áhuga og góðrar aðstöðu til iðkunar á Blönduósi var nýverið stofnuð körfuknattleiksdeild innan Ungmennafélagsins Hvatar.
22:41 03. jún. 2020   Brotist inn á þremur stöðum á Blönduósi
Brotist var inn á þremur stöðum á Blönduósi síðastliðna nótt og verðmætum stolið. Lögreglan á Norðurlandi vestra er með málið til rannsóknar og hefur einn aðili verið handtekinn í tengslum við það og er nú í haldi lögreglu. Málið var unnið í góðri samvinnu við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu og Lögregluna á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram í færslu á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
15:45 03. jún. 2020   Blönduósbær fær styrk til göngu- og hjólreiðastígagerðar við Hrútey
Blönduósbær sótti nýverið um 35 milljón króna styrk til Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við hjóla- og göngustígagerð, með nauðsynlegri göngubrú, við Hrútey í Blöndu. Vegagerðin tók jákvætt í umsóknina en þar sem búið var að ráðstafa öllum styrkjum af þessari gerð fyrir árið í ár er áætlað að greiða styrkinn, sem samþykktur var að fjárhæð 30 milljónir, á næsta ári eða þegar framkvæmdum er að fullu lokið.
14:54 03. jún. 2020   Lætur af störfum eftir 35 ár á sama stað
Á vef Blönduósbæjar er sagt frá því að Ragnhildur Helgadóttir sé hætt störfum hjá Blönduósbæ eftir 35 ára starf. Ragnhildur starfaði hjá heimilishjálp Blönduósbæjar og á skrifstofu sveitarfélagsins við ræstingar. Ragnhildi var afhent kveðjugjöf frá starfsfólki skrifstofu Blönduósbæjar af Valdimari O. Hermannssyni sveitarstjóra sem þakkaði henni fyrir vel unnin störf og óskaði henni velfarnaðar.
14:15 03. jún. 2020   Aðalfunur Framsóknarfélags Austur Húnvatnssýslu
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Framsóknarfélags Austur Húnavatnssýslu verður haldinn þriðjudaginn 9. júní kl. 20:15 í Félagsheimilinu á Skagaströnd.
09:04 03. jún. 2020   Aðalfundur Krabbameinsfélags Austur-Húnavatnssýslu
Aðalfundur félagsins verður haldinn í dag klukkan 17:00 á Þverbraut 1 (Ósbæ). Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir á fundinn. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A-Hún. Sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
Fyrri 76-90 1 2 3 4 5 6 7 8 Næstu 106-109
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið