Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Miðvikudagur, 8. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:19 0 0°C
Laxárdalsh. 16:19 0 0°C
Vatnsskarð 16:19 0 0°C
Þverárfjall 16:19 0 0°C
Kjalarnes 16:19 0 0°C
Hafnarfjall 16:19 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 91-105 106-120 af 127 Næstu 121-127
KlukkanDagsetningFrétt
15:09 09. mars 2020   Íslensk lopapeysa er verndað afurðarheiti
Matvælastofnun hefur samþykkt að heitið Íslensk lopapeysa - Icelandic Lopapeysa verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til uppruna. Handprjónasamband Íslands sótti um vernd fyrir afurðarheitið. Þetta er annað afurðarheitið sem hlýtur vernd hérlendis frá því að lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Áður hlaut heitið Íslenskt lambakjöt skráða vernd.
14:19 09. mars 2020   Fjármunum úthlutað til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020. Verkefni í Húnavatnssýslum sem fá úthlutun úr verkefnaáætlun Landsáætlunar 2020-2022 eru Borgarvirki, Hvítserkur og Þrístapar.
20:45 08. mars 2020   Lokað fyrir heimsóknir á Sæborg
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg á Skagaströnd fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars, þar til annað verður formlega tilkynnt. Í tilkynningu á vef Skagastrandar segir lokunin sé gerð að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir vegna COVID-19 veirunnar. Allra leiða er leitað til að draga úr hættu á að íbúar veikist og er lokunin liður í því.
18:25 07. mars 2020   Lokað fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir HSN
Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands hefur tekið ákvörðun um að loka sjúkra- og hjúkrunardeildum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta þar til annað verður formlega tilkynnt. Lokunin hefur þegar tekið gildi, að því er fram kemur í tilkynningu frá HSN. Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir vegna COVID-19 veirunnar.
13:39 06. mars 2020   Fleiri sveitarfélögum boðið til viðræðna um sameiningu
Sameiningarnefnd Austur-Húnavatnssýslu kom saman í fyrsta sinn á árinu þann 25. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var meðal annars rædd aðild annarra sveitarfélaga að sameiningarviðræðunum. Samþykkt var samhljóða að bjóða Húnaþingi vestra, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi formlega að viðræðunum.
13:01 06. mars 2020   Æskulýðsmessa í Hólaneskirkju
Frá Skagastrandarprestakalli
Æskulýðsmessa verður í Hólaneskirkju sunnudaginn 8. mars klukkan 16:00. Unga kynslóðin leiðir messuna í samvinnu við sr. Bryndísi, Hugrúnu Sif organista og tónlistarstjóra og Ástrós Elísdóttur barnakórstjóra. Fermingarbörn 2020 leika á hljóðfæri syngja, sýna leikrit og leiða bænastund. Barnakór Hólaneskirkju flytur okkur falleg lög. Almennur safnaðarsöngur verður undir styrkum röddum kórs Hólaneskirkju.
19:52 05. mars 2020   Fyrsta skóflustungan tekin að viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra
Í dag var fyrsta skóflustungan tekin að viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga sem einnig mun hýsa Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Með viðbyggingunni mun starfsumhverfi kennara og nemenda gjörbreytast til batnaðar og auk þess sem fjölmörg tækifæri skapast með að hafa tónlistarskólann í sama húsnæði. „Það er því tilhlökkunarefni að sjá nýja húsnæðið rísa og undirbúa samvinnu skólastofnanna tveggja undir sama þaki,“ segir í frétt á vef Húnaþings vestra.
17:33 05. mars 2020   Vinsamlegast athugið, vegna boðaðs verkfalls aðildarfélaga BSRB
Tilkynning frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Kjölur- stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu hefur boðað verkfall dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl. Íþróttamiðstöðin verður lokað viðkomandi daga ef það kemur til verkfalls.
16:38 05. mars 2020   Hættuástand á Þverárfjalli
Tilkynning frá RARIK
Mikill snjór er nú á Þverárfjalli. Snjór hefur meðal annars hlaðist upp undir háspennulínu RARIK á svæðinu frá bænum Þverá til Hvammshlíðar og er vírinn þar sem hann er lægstur kominn niður fyrir þrjá metra. Um fleiri kafla á línunni getur verið að ræða og fólk sem er á ferðinni um þetta svæði er vinsamlegast beðið um að sýna varkárni. Við bendum einnig á síma svæðisvaktar RARIK á Norðurlandi.
11:50 05. mars 2020   Ráðið í nýtt starf verkefnastjóra hjá SSNV
Áhersla á auknar fjárfestingar hjá nýráðnum starfsmanni
Magnús Jónsson hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóra hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hlutverk nýs verkefnisstjóra verður að vinna að því að laða fjárfestingar inn í landshlutann með það fyrir augum að fjölga atvinnutækfærum og auka fjölbreytni þeirra. Starfið er sérstakt áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshlutans og er liður í samningi milli SSNV og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem undirritaður var í september 2019.
16:51 04. mars 2020   Aðalfundur Ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi
Aðalfundur Ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi verður haldinn miðvikudaginn 11. mars og hefst kl. 18:00 í norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar.
13:35 04. mars 2020   Námskeið á vegum Endurmenntunar LBHÍ
Endurmenntun Landbúnaðarháskóli Íslands, í samstarfi við Sauðfjárræktarfélag Vatnsnesinga, heldur námskeiðið „Fóðrun og fóðurþarfir sauðfjár“ miðvikudaginn 18. mars næstkomandi frá klukkan 11-17 í félagsheimilinu Hamarsbúð á Vatnsnesi. Námskeiðið er sérstaklega ætlað sauðfjárbændum og þeim sem tengjast sauðfjárrækt en er einnig opið öðrum. Farið verður yfir helstu atriði varðandi fóðurþarfir og fóðrun sauðfjár á mismunandi tímabilum og aldursskeiðum.
11:28 04. mars 2020   Reiðhöllin færð í betra horf
Framkvæmdir eru komnar á skrið í reiðhöllinni í Arnargerði en hún verður 20 ára 11. mars næstkomandi. Í síðasta mánuði óskaði stjórn Hestamannafélagsins Neista eftir aðstoð frá félagsmönnum, sem og öðrum, við að koma reiðhöllinni í betra horf og stóð hún fyrir vinnuhelgi um síðustu helgi. Á vef Neista segir að vaskir Neistafélagar hafi mætt og létu þeir hendur standa fram úr ermum og hófu framkvæmdirnar.
10:49 04. mars 2020   Varaafl langt frá því að vera nægjanlegt
„Almennt séð má segja að varaafl sé langt frá því að vera nægilegt í landshlutanum. Í einhverjum tilfellum kemur það til af því að stofnanir sem reka raforkukerfið hafa stórlega vanmetið stöðu kerfisins og staðhæft að varafls sé ekki þörf. Hafa bæði stofnanir/fyrirtæki og bændur fengið slíka ráðgjöf.“ Þetta segir í svari Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við spurningu átakshóps stjórnvalda vegna óveðursins í desember og finna má í samantekt sem gerð var fyrir átakshópinn.
16:32 03. mars 2020   Góð þátttaka á Grímutöltmóti Neista
Góð þátttaka var á Grímutöltmóti Hestamannafélagsins Neista sem fram fór á laugardaginn. Mótið var annað mót vetrarins hjá Neista og hluti af SAH-Mótaröðinni. Rúmlega 40 voru skráðir til leiks og áhorfendur létu sig ekki vanta á pallana. „Mikið um góð hross og frábæra búninga,“ segir í færslu á Facebook síðu Neista. Æskulýðsnefndin sá um glæsilegt kaffihlaðborð.
Fyrri 91-105 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næstu 121-127
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið