11:40 |
10. nóv. 2020 |
Stjórnvöld hvött til að breyta lögum um fasteignagjöld
Byggðarráð Húnaþings vestra hvetur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera nauðsynlegar breytingar á lögum til að lengja megi lögveð fasteignagjalda. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir að sveitarfélög þurfi að ganga að fyrirtækjum og einstaklingum sem mögulega lenda í greiðsluerfiðleikum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. |
13:18 |
09. nóv. 2020 |
Útgjaldaaukningu ársins mætt með lántöku
Á fundi byggðaráðs Blönduósbæjar í síðustu viku var lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2020 en hann byggir á breyttum forsendum um tekjur og gjöld á yfirstandandi ári. Samtals er um útgjaldaaukningu að ræða og nemur hún 135,3 milljónum króna sem mætt verður með lántöku. Stærsta einstaka breytingin er lækkað framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 45,1 milljón króna. |
11:23 |
09. nóv. 2020 |
Átta í einangrun - sex í sóttkví
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra uppfærði í dag skráningu yfir þá sem eru í einangrun og sóttkví vegna kórónuveirufarsóttarinnar. Nú eru átta í einangrun og sex í sóttkví samanber meðfylgjandi töflu. Þetta er allt á réttri leið, segir í tilkynningu frá aðgerðastjórninni. |
13:11 |
07. nóv. 2020 |
Koma á fót miðstöð nýsköpunar í textíliðnaði
Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, og fulltrúar á vegum Textílmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eru meðal þátttakenda í alþjóðlega verkefninu CENTRINNO sem nýlega hlaut 8,2 milljón evra styrk (1,3 milljarður ISK) úr Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins. Í hlut Háskóla Íslands koma tæpar 28 milljónir en heildarstyrkur íslensku þátttakendanna er í kringum 130 milljónir íslenskra króna. |
12:17 |
06. nóv. 2020 |
Áríðandi tilkynning frá B & S á Blönduósi til eldri borgara á Blönduósi
Til þeirra eldri borgarara á Blönduósi sem fengu tilkynningu frá B&S Restaurant í vikunni. Takið eftir það, gleymdist að taka fram að matnum verður keyrt heim til ykkar á auglýstum tíma og degi. |
09:59 |
06. nóv. 2020 |
Stjórnvöld hvött til að kanna styttingu þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur
Á bæjarstjórnarfundi Akureyrarbæjar 3. nóvember var rætt um mögulega styttingu þjóðvegar milli Akureyrar og Reykjavíkur. Í bókun fundarins er ríkisstjórn og Alþingi hvatt til að meta og taka afstöðu til hugmynda sem fram hafa komið um styttingu þjóðvegar 1 á milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur. Ljóst er að verulegur þjóðhagslegur ávinningur hlýst af styttingu leiðarinnar sem myndi bæta samkeppnishæfni svæðisins á atvinnu- og íbúamarkaði, segir í bókuninni. |
15:07 |
05. nóv. 2020 |
Vinnustofur færðar í fjarfund
Frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra
Vinnustofur fyrir þá sem eru að vinna að umsóknum í Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra hafa verið færðar í fjarfund í ljósi aðstæðna.
Boðið verður upp á vinnustofu í gegnum fjarfundaforritið Zoom mánudaginn 9. nóvember, kl. 16-17. Á heimasíðu SSNV, www.ssnv.is, og facebooksíðu samtakanna eru slóðir inn á fjarfundinn. |
08:32 |
05. nóv. 2020 |
Lokað tímabundið fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir HSN
Tilkynning frá framkvæmdastjórn
Vegna aukins fjölda smita á Norðurlandi hefur HSN ákveðið að loka tímabundið fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir frá og með 4. nóvember. |
15:29 |
04. nóv. 2020 |
Gul veðurviðvörun
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun sem gildir um mest allt land í dag og á morgun. Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður vindur í dag að suðvestan 18-23 m/s fram til miðnættis og geta vindhviður farið í 35 m/s. Eftir hádegi á morgun verður vindur suðvestlægur 20-25 m/s og áfram gætu vindhviður farið í 35 m/s. Fólk er bent á að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón. |
11:06 |
04. nóv. 2020 |
Níu í einangrun - 19 í sóttkví
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra uppfærði í gær skráningu yfir þá sem eru í einangrun og sóttkví vegna kórónuveirufarsóttarinnar. Nú eru níu í einangrun og 19 í sóttkví samanber meðfylgjandi töflu. Eitt nýtt smit greindist í fyrradag en viðkomandi var í sóttkví. |
10:59 |
04. nóv. 2020 |
Breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar
Á vef Blönduósbæjar er að finna skipulagsauglýsingu þar sem verið er að auglýsa tillögur að breytingum á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030. Breytingarnar varða legu Þverárfjallsvegar norðaustur af Blönduósi, fjölgun efnistökusvæða á Sölvabakka, stækkun sorpförgunarsvæðis og rekstur brennsluofns í Stekkjarvík og legu reiðleiðar innan þéttbýlisins á Blönduósi. |
09:37 |
04. nóv. 2020 |
Hafa þungar áhyggjur af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda
Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggð, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs haustið 2020. Ályktunin hefur verið send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda og afurðastöðva landsins. |
10:21 |
03. nóv. 2020 |
KS gefur 40 þúsund máltíðir
Kaupfélag Skagfirðinga og fyrirtæki þess sem framleiða matvöru af ýmsu tagi ætla að gefa sem nemur 40 þúsund máltíðum. Þær eru ætlaðar fólki sem á í erfiðleikum vegna kórónuveirukreppunnar og verða afhentar fram að jólum. Við höfum leitað eftir samstarfi við þær hjálparstofnanir sem liðsinna fólki í neyð, sagði Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins á dögunum. Þær hafi reynsluna í hvernig eigi að útbúa pakka af þessu tagi og séu þegar teknar að undirbúa móttöku á vörunum. |
14:16 |
02. nóv. 2020 |
Þrír nýir aðilar taka til starfa á Húnabraut 4
Þrír aðilar hafa tekið til starfa í endurbyggðu húsnæði Ámundakinnar á Húnabraut 4, Blönduósi. Þetta eru Ungmennasamband Austur-Húnavatnssýslu (USAH) og Ungmennafélagið Hvöt, Húnakaffi (brauðgerð) og Hárgreiðslustofa Bryndísar Braga. Undanfarin tvö ár hafa farið fram gagngerar endurbætur á húsinu og lóðinni í kring um það sem sér nú brátt fyrir endann á. Þá mun ÁTVR flytja verslun sína í húsið og opna þar á næstunni. |
18:18 |
31. okt. 2020 |
Frá Þingeyraklaustursprestakalli
Kæru sóknarbörn. Í ljósi hertra aðgerða stjórnvalda í baráttunni við Covid verður kirkjan að fara eftir settum reglum. Eftir sem áður mun sóknarprestur leggja sig fram um að sinna öllum sem til hennar leita. Sunnudagaskólinn, fermingarfræðslan og hefðbundið helgihald fellur niður til 18. nóvember. Blönduóskirkja verður opin á milli klukkan 10-14 föstudaga, laugardaga, sunnudaga og mánudaga. |